Lífið

Mynda­veisla: Júlía Margrét frum­sýndi Guð leitar að Salóme

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Júlía Margrét Einarsdóttir frumsýndi verk sitt Guð leitar að Salóme í Landnámssetrinu á laugardaginn.
Júlía Margrét Einarsdóttir frumsýndi verk sitt Guð leitar að Salóme í Landnámssetrinu á laugardaginn. Mateusz Sajdowski

Rithöfundurinn Júlía Margrét Einarsdóttir frumsýndi verk sitt Guð leitar að Salóme á Sögulofti Landnámssetursins á laugardaginn.

Guð leitar að Salóme er skáldsaga eftir Júlíu Margréti sem kom út árið 2021 og snerti bókin við lesendum á eftirminnilegan hátt. Nú færir Júlía sálarstríð fjölskyldunnar af Skipaskaga á fjalirnar í einleik sem byggður er á bókinni.

Það var húsfylli á frumsýningunni á laugardaginn og voru viðbrögð gesta góð. Bókmenntafræðingurinn Silja Aðalsteinsdóttir hafði meðal annars þetta að segja:

„Júlía Margrét er mjög aðlaðandi manneskja sem hefur þægilega nærveru og það sem mest er um vert: hún er afar vel máli farin og hefur góðan orðaforða. Það er bæði gaman og upplyftandi að hlusta á hana. Henni var tekið með kostum og kynjum eftir frumflutninginn í gærkvöldi og freistandi að segja: Hér er stjarna fædd!“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Júlía Margrét stígur á svið á Söguloftinu en hún hefur áður deilt sviðinu með föður sínum Einari Kárasyni þegar þau túlkuðu Skálmöld árið 2015.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá frumsýningu Guð leitar að Salóme.

Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski
Mateusz Sajdowski





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.