Lífið

Sjö egg í laup krummapars á Selfossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Grétar Ingi Sigurðsson,  verslunarstjóri hjá Byko á Selfossi bendir hér á laupinn við merki verslunarinnar.
Grétar Ingi Sigurðsson, verslunarstjóri hjá Byko á Selfossi bendir hér á laupinn við merki verslunarinnar. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Enn og aftur hafa hrafnarnir Hrefna og Hrafn gert sér laup við verslun Byko á Selfossi og þar er Hrefna búin að verpa sjö eggjum. En þetta er ekki eini laupurinn á Selfossi.

Sama hrafnaparið hefur komið sér upp laup við Byko síðustu ár. Laupurinn núna er reyndar aðeins neðar en síðustu ár. Hröfnunum virðist líða vel á þessum stað enda eru komin sjö egg í laupinn, sem þykir mjög mikið þegar hrafnar eru annars vegar.

„Þetta er níunda árið, sem þeir eru hjá okkur. Þetta er mikil skemmtun fyrir aðra og við settum upp myndavél fyrir nokkrum árum og höfum leyft fólki að fylgjast með. Það er fólk út um allan heim að fylgjast með þessu alveg til Ástralíu og víðar. Mér sýnist þetta vera þannig að kerlingin liggur á og karlinn skaffar æti,“ segir Grétar Ingi Sigurðsson, verslunarstjóri hjá Byko á Selfossi.

Hrefna, sem passar vel upp á eggin sín í laupnum við Byko á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Starfsmenn Byko gefa líka fuglunum og þá eru þeir kallaðir í mat.

Og það stendur ekki á viðbrögðunum, þá koma Hrefna og Hrafn fljúgandi til að sækja matinn og fara með hann á leynistað skammt frá Byko. Þau ætla greinilega að eiga nóg þegar ungarnir sjö klekjast út úr eggjunum.

Hægt er að fylgjast með krummaparinu í beinni útsendingu í gegnum vefmyndavél allan sólarhringinn.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og heldur þú að það verði pláss fyrir sjö unga í laupnum?

„Já, já, þau hljóta að hafa pláss. Það er allt skemmtilegt í kringum laupinn og fuglana, til dæmis bara í morgun var hér skólahópur af krökkum að skoða og eru búin að vera að kynna sér þetta,“ segir Grétar Ingi.

En það er ekki bara laupurinn við Byko, það er annar laupur skammt frá versluninni í þyrpingu grenitrjáa.

Ekki hefur verið laupur þarna áður svo vitað sé til og engin hefur hugmynd um hvort það sé komin egg í laupinn og hvað þau eru mörg, enda krummaparið hér ekki í beinni útsendingu allan sólarhringinn eins og parið við Byko. Þeir sem vilja fylgjast með útsendingunni þar gegna farið inn á heimasíðu Byko.

Heimasíða Bykos

Eggin sjö í laupnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.