Tónlist

Gítarleikari The Script látinn aðeins 46 ára gamall

Árni Sæberg skrifar
Mark Sheehan lést í dag eftir skammvinn veikindi.
Mark Sheehan lést í dag eftir skammvinn veikindi. Mike Lewis/Getty

Mark Sheehan, gítarleikari og einn stofnenda írsku hljómsveitarinnar The Script, lést í dag aðeins 46 ára gamall.

„Ástkær eiginmaður, faðir, bróðir, hljómsveitarfélagi og vinur okkar Mark Sheehan lést á sjúkrahúsi í dag eftis skammvinn veikindi. Fjölskyldan og hljómsveitin biðla til aðdáenda að virða friðhelgi einkalífs þeirra á þessum erfiða tíma,“ segir í tilkynningu hljómsveitarinnar á Twitter.

Sheehan stofnaði The Script árið 2001 ásamt æskuvini sínum og söngvaranum Danny O'Donoghue og Glen Power, sem leikur á trommur.

Í frétt Sky News um andlát Sheehans segir að þeir O'Donoghue hafi þekkst allt frá þrettán ára aldri og að þeir hafi ungir farið til Los Angeles til þess að freista gæfunnar í tónlistarbransanum vestanhafs. 

Þeir hafi svo snúið aftur til Írlands árið 2001 og fengið Power til liðs við sig til þess að slá á skinnin í þriggja manna hljómsveit. 

Hljómsveitin The Script hafi síðan þá gefið út sex hljómplötur og selt tuttugu milljónir eintaka. Fimm þeirra hafi komist á topp vinsældarlista í Bretlandi og allar sex á Írlandi.

Meðal þekktustu laga hljómsveitarinnar er fyrsta smáskífa hennar We Cry og The Man Who Can't Be Moved af fyrstu plötu sveitarinnar. Það síðarnefnda má heyra í spilaranum hér að neðan:

Sheehan lætur eftir sig eiginkonuna Rinu og þrjú börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.