Veiði

Sjóbirtingsveiðin fór vel af stað í Kjósinni

Karl Lúðvíksson skrifar
Þessi veiddist í Laxá í Kjós í gær. Frábær skilyrði eru til veiða í ánni.
Þessi veiddist í Laxá í Kjós í gær. Frábær skilyrði eru til veiða í ánni. Mynd: Laxá í Kjós FB

Sjóbirtingsveiðin í Laxá í Kjós er farin af stað og byrjar eins og víða á landi mjög vel enda skilyrðin til veiða afskaplega góð.

Tímabilið í Laxá í Kjós er ekki nema 30 dagar og það verður líklega mjög gaman hjá þeim sem eiga daga framundan því það er nóg af sjóbirting ennþá í ánni og skilyrðin til veiða frábær. Það er nokkuð mikið vatn núna þegar það er góð snjóbráð og lofthitinn 7-8 gráður. Gæti ekki verið betra. Það er aðeins veitt á fjórar stangir og veiðin hjá þeim var tuttugu fiskar sem var landað á fyrstu kvöldvakt. Stærðin á fiskinum var 55-80 sm. 

Það er eiginlega nauðsyn að minna þá sem vilja veiða þarna að bóka sig fyrir næsta vor núna því svæðið nýtur þvílíkra vinsælda að það komast færri að en vilja.






×