Lofar spennandi og skemmtilegri keppni SS 4. apríl 2023 09:01 Salka Valsdóttir tónlistarkona er ein þriggja sem skipar dómnefnd sem valdi sex lög áfram í keppninni um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Fyrsti þátturinn af Skúrnum kemur inn á Vísi eftir páska. Þar munu sex flytjendur keppa um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu.
Um 130 lög bárust í keppnina og nú er búið að velja sex ólíkar útsetningar lagsins sem kynntar verða í þáttarröðinni Skúrinn sem verður sýnd á Vísi eftir páska og út apríl. Hver þáttur er helgaður einum keppenda en þar er bæði útgáfa hans af SS pylsulaginu kynnt til sögunnar auk þess sem hver keppandi flytur frumsamið lag. Klippa: Sex flytjendur keppa um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu í Skúrnum. Dómnefnd átti erfitt verk fyrir höndum því mörg laganna voru bæði skemmtileg og frumleg að sögn Sölku Valsdóttur tónlistarkonu sem skipar dómnefnd ásamt Hafþóri Úlfarssyni, deildarstjóra í markaðsdeild SS, og Árna Beinteini Árnasyni leikara. „Fjöldi laga og fjölbreytni þeirra kom mér helst á óvart, segir Salka. „Fyrir fram var ég opin fyrir öllu en vissi satt að segja ekki hverju ég átti vona á. Það var því gaman að sjá hvað mikið af flottu ungu fólki sendu lög inn og hvað margar útsetningar voru metnaðarfullar. Sjálf var ég helst að leita eftir einhverju sem ég hafði ekki heyrt áður, einhverju flottu og skemmtilegu sem myndi kveikja í mér.“ Um 130 lög bárust í keppnina. Sex lög keppa til úrslita í þáttarröðinni Skúrinn sem er sýnd á Vísi eftir páska. Fjölbreyttar tónlistarstefnur Útsetningar þeirra sex keppenda sem komust áfram eru ólíkar og eiga áhorfendur von á hörku skemmtilegri keppni. „Ég vissi ekkert um bakgrunn keppenda þegar ég hóf að hlusta á lögin og því komu þessar fjölbreyttu tónlistarstefnur skemmtilega á óvart. Þar mátti heyra lög í big band útsetningu, pönk-útsetningar, mikið af hip-hoppi og house útgáfum, jazzútgáfur og margt annað skemmtilegt. Raunar átti ég von á einhæfari útsetningum en það varð alls ekki raunin.“ Salka er sú eina í dómnefndinni sem starfar við tónlist en hún er meðal annars einn meðlima Reykjavíkurdætra. „Því má segja að hlutverk mitt hafi snúist meira um að skoða útsetningar laganna og hvernig þau voru prúdúseruð á meðan Hafþór og Árni voru frekar að huga að markaðsþættinum og skemmtanagildinu.“ Gott skipulag borgar sig Það er ekki auðvelt að hlusta á og dæma svo mörg lög og því segist Salka hafa komið sér upp ákveðnu kerfi til að auðvelda henni valið. „Ég reyndi að vera skipulögð og notaðist við ákveðið kerfi þar sem ég gaf hverju lagi mismörg stig eftir nokkrum þáttum, til dæmis útsetningu þeirra, frumleika, hversu vel þau hentuðu í markaðslegum tilgangi og fleiri þáttum. Og ef lagið heillaði mig á einhverjum öðrum forsendum þá skrifaði ég hjá mér athugasemdir. Ég get að minnsta kosti lofað áhorfendum stór skemmtilegri keppni og það verður svo sannarlega spennandi sjá og heyra nýjasta SS pylsulagið sem mun án efa hljóma víða um land í sumar og um ókomna tíð.“ Fyrsti þáttur Skúrsins kemur inn á Vísi eftir páska. Kosning um besta lagið fer svo fram á Vísi eftir að öll lögin hafa verið kynnt.
Skúrinn Tónlist Mest lesið Lítil tengsl við okkar innri kynveru koma niður á kynlífinu Lífið Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Tekst á við lífið sem einhverf mamma með langveikt barn Lífið Fleiri fréttir Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Sjá meira