Lífið

Sesselja Ósk vann Söng­­­keppni fram­halds­­­skólanna

Eiður Þór Árnason skrifar
Sesselja Ósk bar sigur úr býtum þetta árið.
Sesselja Ósk bar sigur úr býtum þetta árið. Vísir

Sesselja Ósk Stefánsdóttir sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna 2023 í kvöld fyrir hönd Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Keppnin fór fram í Hinu húsinu í Elliðaárdal og tóku fulltrúar alls 24 framhaldsskóla þátt í keppninni sem haldin er af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema. Sesselja Ósk söng lagið Turn Me On með bandarísku tónlistarkonunni Norah Jones.

Annað sæti hlaut Erla Hlín Guðmundsdóttir frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og í því þriðja lenti Viktoría Tómasdóttir frá Menntaskólanum í tónlist. 

Sigurvegarinn var valinn með símakosningu þar sem atkvæði áhorfenda giltu til helmings á móti atkvæðum dómnefndar. Ófáar tónlistarstjörnurnar hafa brotist fram á sjónarsviðið í þessari sögufrægu keppni í gegnum tíðina en að þessu sinni var sýnt frá henni á Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Horfa má á sigurflutninginn í spilaranum.

Húsband kvöldsins voru drengirnir úr Stuðlabandinu sem útfærðu öll lög með keppendum.

Andrea Jónsdóttir, forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) segir að allt starfsfólk og sjálfboðaliðar sem hafi komið að skipulagningu keppninnar eigi mikið hrós skilið. 

„Stjórn SÍF hefur lagt mikið í að keppnin haldi striki og að sú góða hefð að keppa í söng hverfi ekki úr íslensku menningalífi innan skólanna,“ er haft eftir háni í tilkynningu.

Klippa: Viktoria Tomasdóttir - Need your love so bad

Hér má finna öll önnur framlög í keppninni í kvöld.

Keppnin í heild sinni

Klippa: Söngkeppni framhaldsskólanna 2023

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.