Lífið

Jóhanna sveik Sunnevu og fékk sér kampavínsglas í svítunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhanna kom sér undan því að þrífa hótelherbergi og skellti sér í svítuna.
Jóhanna kom sér undan því að þrífa hótelherbergi og skellti sér í svítuna.

Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir fóru af stað með nýja þáttaröð af #Samstarfi á Stöð 2 á dögunum.

Í þáttunum fá áhorfendur að fylgjast með þeim vinkonum Sunnevu og Jóu tækla fjölbreytt verkefni á vinnumarkaði, eins og þeim einum er lagið.

Í þætti gærkvöldsins fengu þær að reyna fyrir sér sem starfsmenn hótelsins Hótel Keflavík þar sem má meðal annars finna Diamond Suites. Þær prófuðu fyrir sér að hella upp á kaffi, vinna í móttökunni og þrífa hótelherbergi.

Sunneva tók í gegn eitt herbergi en á meðan fór Jóhanna í annað verkefni og má segja að hún hafi í raun svikið Sunnevu eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Jóhann sveik Sunnevu og fékk sér kampavínsglas í svítunni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.