Lífið

Maus, Bríet og Laddi mæta á Bræðsluna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bríet treður upp og mun væntanlega flytja alla sína helstu slagara.
Bríet treður upp og mun væntanlega flytja alla sína helstu slagara. vísiR/Daníel Þór

Tilkynnt hefur verið um listamenn sem troða upp á Bræðslunni á Borgarfirði eystra laugardaginn 29. júlí í sumar. Maus, Bríet og Laddi eru á meðal þeirra sem koma fram.

Bræðslan fer fram í 18. skipti í sumar, í gamalli síldarbræðslu sem Borgfirðingar breyta í tónleikahöll eitt kvöld ár hvert.

Í ár kom fram Maus, Bríet, Laddi, Karlotta, Una Torfa, Jói Pé og Króli auk Jóns Arngríms og Valla Skúla.

Miðasala hefst föstudaginn 10. mars en sem fyrr eru um 900 miðar í boði.

„Ungt tónlistarfólk fær tækifæri á Bræðslunni ár hvert og í þetta skiptið er það ung og efnileg söngkona, Karlotta sem mun opna hátíðina. Úr yngri deildinni koma líka snillingarnir Jói P. & Króli og hin frábæra Bríet mun snúa aftur í Bræðsluna þar sem hún átti eftirminnilega frammistöðu fyrir fáeinum árum,“ segir í tilkynningu.

„Önnur frábær söngkona sem hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum mánuðum er Una Torfa og hún mun stíga á Bræðslusviðið í sumar eftir að hafa tekið þátt í föstudagsforleik Bræðslunnar í fyrra. Hin goðsagnakennda rokksveit Maus mun síðan snúa aftur eftir langt hlé en sveitin mun halda upp á 30 ára afmæli sitt í Bræðslunni.“ 

Þá sé ekki allt talið. 

„Fulltrúar heimamanna sem munu sjá um að Bræðslugestir fái að heyra borgfirsk ættjarðarlög eru þeir Jón Arngrímsson og Valgeir Skúlason sem hafa samið og flutt tónlist fyrir Austfirðinga um áratugaskeið. Og síðastan, en alls ekki sístann kynnum við Ladda sem mun flytja öll sín bestu lög ásamt hljómsveit á Bræðslunni í sumar. Sannarlega fjölbreytt dagskrá.“

Í tilkynningu segir að Borgarfjörður eystra hafi eflst gríðarlega sem áfangastaður fyrir ferðafólk á síðustu árum og gestir Bræðslunnar hvattir til að kanna hvað sé í boði á vefnum borgarfjordureystri.is

„Þar má fræðast um framboð gistingar, veitingastaða og afþreyingar, en göngusvæðið í kringum Borgarfjörð er einstakt og upplagt að tengja ferðalag þangað við heimsókn í Bræðsluna. Önnur dagskrá í firðinum í sumar og þá sérstaklega í aðdraganda Bræðslu verður svo kynnt sérstaklega þegar nær dregur, en miðasala á þá viðburði fer fram síðar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.