Lífið

Einn smekk­legasti maður landsins á ára­tuga­gamalt jakka­fata­safn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ármann þykir einn smekklegasti maður landsins.
Ármann þykir einn smekklegasti maður landsins.

Hann á glæsilegt og framandi heimili og elskar að halda boð.

Vinjettuskáldið og heimsborgarinn Ármann Reynisson bauð Sindra Sindrasyni heim til sín í nýjasta þættinum af Heimsókn á Stöð 2 en þátturinn var á dagskrá í gærkvöldi.

Ármann býr í smekklegri eign í fjölbýlishúsi í austurbæ Reykjavíkur. Hann þykir með eindæmum smekklegur og á mikið og stórt fatasafn. Ármann er til að mynda með stútfullan fataskáp af jakkafötum og eru sum þeirra vel fjörutíu ára gömul eins og sjá má í brotinu hér að neðan.

Klippa: Einn smekk­legasti maður landsins á ára­tuga­gamalt jakka­fata­safn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.