Stefnir í storm á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum Atli Ísleifsson skrifar 24. febrúar 2023 06:48 Sérstaklega er varað við hvassviðri eða stormi á Snæfellsnesi og Vestfjörðum í nótt og á morgun með hviðum um 35 metrum á sekúndu í vindstrengjum við fjöll. Vísir/RAX Landsmenn mega búa sig undir að það bæti hægt í vind í dag og verði sunnan átta til þrettán metrar á sekúndu um hádegi og fimmtán til 23 metrar á sekúndu um miðnætti. Hvassast verður í vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og á Vestfjörðum.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning eða súld með köflum en hægari og úrkomulítið um austanvert landið. Það hlýni heldur í veðri og hiti tvö til átta stig síðdegis. Sérstaklega er varað við hvassviðri eða stormi á Snæfellsnesi og Vestfjörðum í nótt og á morgun með hviðum um 35 metrum á sekúndu í vindstrengjum við fjöll sem getur verið varasamt fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. „Áfram allhvöss eða hvöss sunnanátt á morgun með vætu sunnan- og vestantil en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið. Raunar er útlit fyrir að hlýar, miðað við árstíma, suðlægar áttir verði ríkjandi næstu daga með hita oft á bilinu 2 til 7 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 16 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðlæg átt 13-20 m/s, hvassast um norðvestanvert landið og hægari vindur austantil. Víða rigning en þurrt norðan- og austanlands. Hiti 3 til 9 stig. Á sunnudag og mánudag: Suðlæg átt, víða 10-15 m/s, og væta með köflum en lengst af þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 8 stig. Á þriðjudag og miðvikudag: Fremur hæg suðlæg átt og víða rigning eða súld en bjart með köflum norðaustantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig. Á fimmtudag: Útlit fyirr hæga suðlæga átt. Víða skýjað og lítilsháttar væta og hiti 3 til 7 stig, en bjartviðri norðaustantil á landinu og hiti nærri frostmarki.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira