Heilsa

Hreyfum okkur saman - Dásamlegt styrktarflæði

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríks hefur starfað við þjálfun við átján ár.
Anna Eiríks hefur starfað við þjálfun við átján ár. Vísir

Nýjasti þátturinn af Hreyfum okkur saman er flæðandi tími sem þjálfar styrk og liðleika. Anna Eiríks vinnur þar mikið með samsettar æfingar með léttum handlóðum og góðum liðkandi æfingum. 

Áhöldin sem þarf eru dýna og létt handlóð. Líkt og alltaf er æfingin í kringum fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert æfinguna oftar en einu sinni.

Klippa: Hreyfum okkur saman - Dásamlegt styrktarflæði

Hreyfum okkur saman eru stuttir og fjölbreyttir æfingaþættir fyrir alla sem hafa heilsu til. Anna Eiríksdóttir leiðir þættina með frábærum æfingum og er markmiðið að fá sem flesta til að huga að heilsunni og hreyfa sig smá á hverjum degi.

Anna Eiríks skrifar pistla um mat og heilsu á Lífinu á Vísi.Íris Dögg Einarsdóttir

Þættirnir Hreyfum okkur saman eru sýndir hér á Lífinu á Vísi og Stöð 2+. Næstu vikurnar munu koma út tveir þættir á viku en eldri þætti má finna HÉR.

Anna Eiríks er stofnandi annaeiriks.is og er með Instagram síðuna instagram.com/aeiriks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.