Lífið samstarf

Þurfti að halda aftur af henni í áhættuatriðunum

Samfélagið
Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri sem leikkona er að takast á við áhættuatriði og krefjandi leik
Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri sem leikkona er að takast á við áhættuatriði og krefjandi leik

Vivian Ólafsdóttir fer með hlutverk Kristínar í kvikmyndinni Napóleonsskjölin. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Arnaldar Indriðasonar og var frumsýnd 3. febrúar.

Hver er Kristín? 

Kristín Jóhannesdóttir starfar sem lögfræðingur, hún heldur vel utan um sitt sem er aðallega starfið og bróðir hennar. Hún er mikill einfari og býr með kettinum sínum, honum Músa. Kristín er ekkert mikið að vilja hleypum neinum of náið að sér, þar sem hún er ennþá að takast á við sár úr fortíðinni.

Þetta er stærsta hlutverk þitt hingað til, hvernig voru tökurnar?

„Þær voru geggjaðar! Við vorum á mörgum ólíkum tökustöðu, bæði hérna heima og úti í Þýskalandi. Það er ýmislegt sem hún Kristín þurfti að ganga í gegnum í þessu ævintýri. Óskar er frábær leikstjóri með mikla reynslu og gekk samvinnan mjög vel, eins er að segja um alla sem komu að þessi verkefni.“

Kristín lendir í allskyns ævintýrum, hvernig voru áhættuatriðin?

„Eins og sést í myndinni, þá er mjög mikið af krefjandi áhættuatriðum. Þau systkinin Jón Viðar og Imma og þeirra teymi í Icelandic Stunts sáum um þá deild. Ég var með hana Auði sem sá um að leika Kristínu ef áhættan var of mikil. 

Helst vil ég gera sem mest af öllum sjálf og hefur Jón alveg þurft að halda aðeins aftur af mér. Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri sem leikkona er að takast á við áhættuatriði og krefjandi leik og það er bara eintóm ánægja að vinna með þeim.“

Hafðirðu lesið bókina?

„Já, las hana um leið og ég fékk hlutverkið og fannst það mjög skemmtileg lesning. Mæli með henni!“

Hverju mega áhorfendur búast við?

„Vel gerðri, hörkuspennandi og skemmtileg mynd. Og ég get lofað ykkur því að hún er mikið betri á bíóskjánum en í fartölvunni heima.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.