Hvessir í kvöld og má búast við stormi til fjalla á morgun Atli Ísleifsson skrifar 1. febrúar 2023 07:14 Búast má við frosti á bilinu núll til sjö stig. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir norðaustan fimm til tíu metra á sekúndu og él á Norður- og Austurlandi í dag. Reikna má með hægari vindi og nokkuð björtu veðri sunnan heiða. Frost verður á bilinu núll til sjö stig.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í kvöld og nótt hvessi og megi búast við hvassri austan- og suðaustanátt á morgun, jafnvel stormi til fjalla og í vindstrengjum nærri fjöllum. „Það verður úrkoma um allt land og víða í formi slyddu eða snjókomu og hiti kringum frostmark. Á láglendi sunnan- og suðvestanlands fer úrkoman yfir í rigningu á láglendi þegar líður að hádegi og hlýnar á þeim slóðum um tíma. Seint á morgun snýst síðan í suðvestanátt og það dregur úr vindhraða og úrkomu, fyrst um landið suðvestanvert annað kvöld og aðra nótt fyrir norðan og austan. Á föstudag gera spár síðan ráð fyrir að gangi í sunnan hvassviðri eða storm með rigningu og hlýindum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan og suðaustan 13-20 m/s. Víða snjókoma eða slydda og hiti kringum frostmark. Rigning á láglendi sunnan- og suðvestanlands kringum hádegi og hlýnar heldur þar um tíma. Snýst í minnkandi suðvestanátt suðvestantil undir kvöld og dregur úr úrkomu. Á föstudag: Gengur í sunnan 15-23 með rigningu, einkum á sunnanverðu landinu. Hlýnar, hiti 2 til 8 stig síðdegis. Á laugardag: Hvöss suðvestanátt með éljum, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti um og undir frostmarki. Á sunnudag: Sunnan hvassviðri eða stormur með rigningu og hlýindum. Á mánudag: Snýst í hvassa suðvestanátt með éljum og frystir. Á þriðjudag: Suðvestan stormur með úrkomu og hita kringum frostmark.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira