Tóku lagið í flugvélinni og dreymir nú um að halda tónleika á Íslandi Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 28. janúar 2023 10:01 Jessica segir lífreynsluna hafa verið draumi líkasta. Aðsent Kanadíska tríóið Jessica Pearson and the East Wind vakti mikla athygli hér á landi á dögunum fyrir það að blása til tónleika um borð í Icelandair flugvél. Farþegar vélarinnar voru fastir um borð vegna veðurs og hvatti áhöfnin hljómsveitina til að taka nokkur lög.
Bútur af flutningnum náðist á myndband og hefur vakið mikla lukku hjá netverjum. Vísir sló á þráðinn til Jessicu, söngkonu og gítarleikara sveitarinnar og spjallaði við hana um athyglina frá Íslandi. Hún segir sveitina hafa verið agndofa yfir athyglinni sem flutningurinn fékk en tillaga þeirra um að spila fyrir farþega vélarinnar var grín af þeirra hálfu í fyrstu en þær létu vita af því að þetta væri möguleiki. „Ég kom þarna aftur í og spurði þær hvort það væri ekki einhver hljómsveit hérna um borð. Þær spruttu upp og við fórum eitthvað að spjalla. Þá segði ég þeim bara að kýla á þetta. Það var bara fínt að fá eitthvað til að létta andann um borð,“ sagði Óskar Tryggvi Svavarsson, flugstjóri í samtali við Vísi um atvikið. Hljómsveitin ætlaði sér að millilenda á Íslandi í stutta stund á leið sinni á þjóðlagasýningu á Írlandi. Þær höfðu aldrei komið til Íslands áður en stormurinn stöðvaði flugumferð og þær þurftu að gista hér eina nótt. Jessica viðurkennir þó að vegna þess hve svefnvana þær voru allar muni þær lítið eftir gistingunni en þegar vélin lenti á Íslandi höfðu þær verði vakandi og á ferðalagi í um 48 klukkustundir. Vissu ekkert fyrr en áhöfnin benti þeim á fréttaflutninginn „Daginn eftir þegar við fórum um borð í vélina til Írlands vorum við spurðar hvort við værum hljómsveitin. Meðlimur úr áhöfninni sýndi okkur svo að við hefðum verið í fréttum. Við vorum gáttaðar. Þetta eru bestu fréttir sem við höfum fengið svona snemma morguns,“ segir Jessica. Aðspurð hvort veðrið og biðin hafi þau áhrif að sveitin vilji ekki koma aftur til landsins segir hún svo ekki vera. Þær séu vanar öllu verandi frá Kanada. Þó fannst þeim rokið magnað. Tríóið hefur komið fram á hinum ýmsu vettvöngum en þó aldrei í flugvél. Aðsent „Við viljum koma aftur eins fljótt og hægt er. Þetta hefur kannski sýnt okkur að við ættum ekki að millilenda um vetur en hefur alls ekki ýtt okkur frá því að koma aftur. [...] Jafnvel þó við höfum verið þarna í tíu tíma voru þetta frábærir tíu tímar, áhöfnin stóð sig svo vel,“ segir Jessica. Hún segir upplifunina vera sögu til næsta bæjar. „Þetta var draumur sem rættist sem mig hafði samt aldrei dreymt. Þetta var töff lífsreynsla sem ég held að mjög fátt tónlistarfólk hafi upplifað.“ Hún segir sveitina trúa á og leita að merkjum frá alheiminum en ein þeirra hafi fundið pening á jörðinni í byrjun ferðarinnar. Við létta leit að merkingu fundarins kom fram að búast mætti við breytingum á áætlunum. „Það fór ekkert eins og áætlað var en það kom svo margt frábært út frá því,“ segir Jessica hlæjandi. Spila vonandi á Íslandi í bráð Þegar möguleikinn á því að halda tónleika á Íslandi er borinn upp er augljóst að sveitin hefur mikinn áhuga á að koma fram hér á landi. „Ég myndi gjörsamlega elska að spila á Íslandi. Við höfum verið að ræða það síðan þetta gerðist allt saman. Markmiðið okkar er að gera það sem fyrst,“ segir Jessica og bætir því við að það væri frábært að fá að koma fram fyrir Íslendinga án þess að vera svefnvana. Sveitin gaf út plötuna ,,On the line" snemma á síðasta ári. Aðsent „Fyrir mér snýst tónlist um fólk og sambönd. Það að geta átt þessa stund með farþegunum og geta lífgað aðeins upp á daginn þeirra með tónlistinni okkar var mjög þýðingarmikið fyrir okkur.“ Aðspurð hvað sé næst á dagskrá hjá sveitinni segir hún undirbúning fyrir nýja plötu standa yfir. „Ég er að skrifa lög fyrir nýja plötu núna, það eru nokkur tilbúin nú þegar. Við erum að klára að skrifa lögin og undirbúa framleiðsluferlið. Það verða klárlega lög innblásin af þessari lífsreynslu á plötunni,“ segir Jessica. Hún er sammála því að það sé í raun nauðsyn fyrir sveitina að halda útgáfutónleika hér á landi í ljósi atburða. „Ef Ísland vill taka á móti okkur myndum við glaðar gera það,“ segir hún og að þessi lífsreynsla hafi kennt henni að allt geti gerst. Hlusta má á plötu sveitarinnar, „On the Line“ hér að ofan.
Kanada Tónlist Icelandair Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Lífið Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Lífið Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira