Lífið

Ömur­legt að upp­lifa sig sem út­lending á Ís­landi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Layfey Lín segir að hún elski að vera á Íslandi og þá sérstaklega að semja tónlist og taka upp myndbönd.
Layfey Lín segir að hún elski að vera á Íslandi og þá sérstaklega að semja tónlist og taka upp myndbönd. Á rúntinum

„Það var ótrúlega gaman að sjá framan í fólkið, sem ég sé bara myndir af á netinu,“ segir Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona. Hún var að ljúka sínu fyrsta „sóló“ tónleikaferðalagi. 

Laufey segir að erlendis sé hlustendahópur hennar yngri en á Íslandi. 

„Ég veit ekki hvort ég sé mjög fræg,“ segir Laufey, en þegar þetta er skrifað er hún með 460 þúsund fylgjendur á Instagram og milljónir hlustanir á Spotify mánaðarlega. Hún hefur komið fram í þáttum eins og spjallþætti Jimmy Kimmel, verið lofuð í Rolling Stone og átti eina vinsælustu plötu Bandaríkjanna á einum tímapunkti. 

„Ég held að það sé það skrítnasta og skemmtilegasta,“ segir Laufey um það þegar fólk þekkir hana úti á götu. Hún segir að það hafi líka verið upplifun að ferðast til nýrra borga og heyra að fólk kunni alla textana hennar á tónleikunum. 

„Það var fullt af fólki sem hafði ekkert betra að gera en að skrolla á Instagram og ég hafði ekkert betra að gera en að taka upp,“ 

segir Laufey um vinsældirnar á TikTok sem sprungu út í heimsfaraldrinum.

Í fyrsta þætti í seríu þrjú af Á rúntinum heimsækir Bjarni Freyr tónlistarkonuna. Í þættinum ræða þau um fyrsta tónleikaferðalagið sem Laufey var að ljúka, lífið hennar í borginni. Einnig fóru þau yfir það hvernig það var fyrir hana að alast upp á Íslandi.

Þau rúnta um Los Angeles og heimsækja sögufræga staði eins og Hollywood merkið og Griffith observatory sem spilar stórt hlutverk í kvikmyndinni La La land. 

Samrýmdar systur

Laufey er tvíburi og þegar það var mikið að gera hjá henni, íhugaði hún að láta Júníu systur sína taka upp kynningar á lögum fyrir Spotify, Apple Music og fleiri staði til að vekja athygli á nýútgefnum lögum. 

„Hún spilar frekar oft með mér. Hún spilaði á fiðlu á túrnum í Evrópu.“

Laufey segir að það sé skemmtilegt að hafa hana með. 

„Hún er besta vinkona mín.“

Fylgir því líka mikil jarðtenging og öryggi að hafa tvíburasystur með sér á tónleikaferðalaginu.

„Ég vissi að ég þyrfti á einhverjum að halda því þetta getur verið frekar mikið. Að fara upp á svið og syngja, fara að sofa, vakna og keyra í tíu klukkutíma og gera þetta allt aftur. Þrjátíu daga í röð. Það er alveg frekar mikið.“

Laufey flakkar mikið á milli Íslands og Bandaríkjanna.Á rúntinum

Upplifði sig öðruvísi

Laufey hélt stóra tónleika í Hörpu í vetur ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands. Voru þetta hennar stærstu tónleikar á ferlinum. 

„Ég var stressuð í smá stund og svo var það bara skemmtilegt.“

Hún nýtur þess samt almennt mjög vel að vera á sviðinu. Í dag býr hún í Bandaríkjunum og kann vel við það.

„Þó að það séu mikið af vandamálum hér, þá er miklu meira af fólki sem er blandað, frá allskonar löndum. Á Íslandi, fann ég alveg fyrir því að ég var öðruvísi og líka ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum. Ég upplifði mig frekar mikinn útlending á Íslandi sem var ömurleg tilfinning. Að vera hálf kínversk, ég fann að ég leit öðruvísi út.“

Viðtalið má heyra í heild sinni í spilaranum ofar í fréttinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.