Lífið samstarf

Keppnin í ár verður æsispennandi

Meistaradeild Líflands
Á fimmtudaginn munu knapar tefla fram sínum allra bestu hestum þegar Meistaradeild Líflands í hestíþróttum hefst.
Á fimmtudaginn munu knapar tefla fram sínum allra bestu hestum þegar Meistaradeild Líflands í hestíþróttum hefst.

Fyrsta mót af sex í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fer fram fimmtudaginn 26. janúar, í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli.

Á fimmtudaginn næsta munu knapar tefla fram sínum allra bestu hestum í fjórgangi en í fyrra voru það Sigurður Sigurðarson og Leikur frá Vesturkoti sem stóðu uppi sem sigurvegarar og verður spennandi að sjá hvort þeir mæti aftur til leiks til að verja titilinn.

Sigurður Sigurðarson og Leikur frá Vesturkoti sigruðu fjórganginn í fyrra.

Í Meistaradeild Líflands eru 8 lið sem tefla fram 3 knöpum af 5 á hverju keppniskvöldi, keppnirnar eru 8 talsins og er ávallt mikil barátta í bæði einstaklings- og liðakeppni. Í fyrra var það lið Top Reiter sem sigraði liðakeppnina og knapi þeirra Árni Björn Pálsson sem sigraði einnig einstaklingskeppnina, eftir harða baráttu fram á síðasta mót.

Klippa: Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum

Keppnin er ein sú allra vinsælasta meðal hestamanna, keppnin er send út um allan heim í beinni útsendingu og á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku. Af gefinni reynslu síðustu ára þá fylgjast 5 – 15 þúsund áhorfendur með hverju keppniskvöldi.

Lið Top Reiters sigraði liðakeppnina í fyrra. Konráð valur Sveinsson, Hanna Rún Ingibergsdóttir, Eyrún Ýr Pálsdóttir, Teitur Árnason og Árni Björn Pálsson

Öll keppniskvöld Meistaradeildar Líflands verða aðgengileg á streymisveitu Alendis TV og einnig verður boðið upp á ýmis konar aukaefni tengd deildinni, hægt verður að kaupa áskrift hér. Kaupendur fá þá aðgang að öllu því efni sem Alendis TV hefur tekið upp og sýnt síðustu árin.

Árni Björn Pálson sigraði 3 keppnir og stóð uppi sem sigurvegari í einstaklingskeppninni. Hér er hann á Kötlu frá Hemlu II.

Gaman er að segja frá því að Íslensk Verðbréf munu bjóða öllum þeim sem vilja mæta í HorseDay höllina 26. janúar frítt inn, mælt er með að áhorfendur mæti tímanlega til að fá góð sæti.

Í vetur verður lögð mikil áhersla á að taka vel á móti gestum í HorseDay höllinni og boðið verður upp á gott og fjölbreytt úrval af veitingum, fyrir keppni og í hléi.

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi sigruðu töltið í fyrra.

Dagskrá vetrarins:

  • 26. janúar - Fjórgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli
  • 9. febrúar - Slaktaumatölt - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli
  • 3. mars - Fimmgangur - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli
  • 23. mars - Gæðingafimi - 19:00 HorseDay Höllin Ingólfshvoli
  • 8. apríl - Gæðingaskeið og 150m skeið - 14:00 Selfoss Brávöllum
  • 15. apríl - Tölt og 100 m skeið - 19:00 HorseDay-Höllin Ingólfshvoli - Lokahátið​





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.