Lífið

Málar hrúta í gríð og erg

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Einar er mjög lunkinn með pensilinn þegar kemur að því að mála hrúta.
Einar er mjög lunkinn með pensilinn þegar kemur að því að mála hrúta. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hrútar eru í miklu uppáhaldi hjá listamanni í Eyjafirði enda hefur hann málað þá marga um ævina og selt ferðamönnum.

Á Brúnum í Eyjafirði eru þau Hugrún Hjörleifsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Einar Gíslason, kennari og myndlistarmaður með kaffihús og sýningarsal með galleri, sem er opið yfir sumartímann. Auk þess eru með hesta og hestasýningar fyrir ferðamenn og sauðfé er líka á bænum.

Bestu stundirnar á Einar á vinnustofunni sinni yfir vetrartímann þegar rólegt er í ferðaþjónustunni og þá gerir hann mikið af því að mála hrúta. Hann málar þó líka hesta og mannamyndir alls konar en hrútarnir eru í mestu uppáhaldi hjá honum.

Á Brúnum í Eyjafirði eru þau Hugrún Hjörleifsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Einar Gíslason, kennari og myndlistarmaður með ferðaþjónustu, sem gengur vel.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Margir koma hérna, sérstaklega allir, sem koma á hestasýningar, þeir fara hérna niður og skoða og gramsa pínu. Ég málaði einhvern tíman svona hrúta og þeir hurfu allir en ég farin að mála þá núna miklu stærri. Þetta er gaman, maður er náttúrulega með kindur og lifir og hrærist í þessum heimi,“ segir Einar.

Einar segist vera mikill dýrakall.

„Já, já, það hefur bara fylgd mér. Þess vegna fór ég í sveit, það var ekki spurning. Ég ætlaði að verða skipstjóri og endaði í Bændaskóla,“ segir Einar hlægjandi.

Hrútar hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá Einari enda seljast myndirnar hans eins og heitar lummur.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.