Úrkomusvæðið færist austur eftir landinu í dag Atli Ísleifsson skrifar 27. desember 2022 07:16 Frost verður á bilinu núll til tíu stig í dag. Vísir/Vilhelm Nokkuð hefur snjóað á Suðvestur- og Suðurlandi í nótt og mun úrkomusvæðið fara austur eftir landinu í dag. Von er á nokkurri snjókomu á Suðausturland og síðar á Austfjörðum.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að víða verði austlæg átt á bilinu átta til fimmtán sekúndu í dag en norðaustan þrettán til átján á Vestfjörðum og Breiðafirði. Frost verður á bilinu núll til tíu stig, kaldast inn til landsins á Norðurlandi eystra. Í kvöld dregur svo úr vindi og léttir smám saman syðra. Það gengur svo í norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu eftir hádegi á morgun, en fimmtán til tuttugu suðaustanlands og á Austfjörðum. Snjókoma austantil á landinu, él norðanlands fram eftir degi en annars bjart með köflum. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan 5-10 m/s, en að 15 m/s með suðausturströndinni. Víða él, en þurrt og bjart að mestu suðvestan- og vestanlands. Frost 3 til 14 stig. Á fimmtudag: Norðlæg átt 5-13 m/s, hvassast austast. Víða él en úrkomulítið sunnan heiða. Frost 6 til 18 stig. Á föstudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en norðan 8-13 ausast. Dálítil él, en að mestu bjart um sunnanvert landið. Talsvert frost. Á laugardag (gamlársdagur): Suðvestlæg átt og éljagangur, en þurrt að kalla norðaustantil. Minnkandi frost. Á sunnudag (nýársdagur): Suðlæg eða breytleg átt með éljum en bjart að mestu á Norður- og Austurlandi. Á mánudag: Útlit fyrir suðlæga átt með úrkomu en bjart með köflum um landið norðaustanvert.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira