Hæg norðlæg átt og dálítil él norðan- og austanlands Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2022 07:13 Veðurstofan gerir ráð fyrir austankalda eða strekkingi og víða snjókomu eða éljum á morgun, aðfangadag, en vestlægari áttum og úrkomulitlu veðri eystra. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir fremur hægri, norðlægri átt í dag, dálitlum éljum norðan- og austanlands en annars léttskýjuðu.
Á vef Veðurstofunnar segir að reikna megi með talsverðu frosti – fjórum til átján stigum þar sem kaldast verður inn til landsins. „Þykknar heldur upp á Suðurlandi seinnipartinn og lítilsháttar snjókoma við ströndina seint í kvöld og nótt. Austankaldi eða strekkingur og víða snjókoma eða él á morgun, aðfangadag, en vestlægari og úrkomulítið eystra. Áfram strekkingsaustanátt á jóladag og él í flestum landshlutum, en dregur heldur úr frosti. Þeir sem hyggjast aka milli landshluta um jólahelgina ættu að fylgjast vel með veðurspám og ástandi vega áður en lagt er af stað. Hyggilegt er að gera ráð fyrir að færð geti versnað með skömmum fyrirvara,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag (aðfangadagur jóla): Norðaustan 8-15 m/s norðvestantil, en annars austan og suðaustan 5-13 og víða él eða snjókoma, en úrkomulítið á Austurlandi og Austfjörðum. Frost yfirleitt 4 til 14 stig, kaldast inn til landsins, en frostlaust syðst. Á sunnudag (jóladagur): Norðaustan og norðan 8-15 m/s, en jafn vel hvassviðri suðaustantil og á Vestfjörðum. Víða él, en mögulega snjókoma sunnanlands. Frost víða 2 til 12 stig. Á mánudag (annar í jólum): Hæg austlæg átt og skýjað, en yfirleitt úrkomulítið, en 8-15 m/s og dálítil snjókoma við suðurströndina. Frost 2 til 15 stig, minnst syðst. Á þriðjudag: Útlit fyrir allhvassa eða hvassa austanátt með snjókomu eða skafrenningi víða á landinu, en dregur heldur úr frosti. Á miðvikudag: Snýst líklega í stífa norðaustanátt með snjókomu, en úrkomulítið sunnan heiða. Talsvert frost. Á fimmtudag: Búast má við norðanátt með éljagangi og harðandi frosti.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira