Leikjavísir

Stjórarnir taka upp veskin og gefa leiki

Samúel Karl Ólason skrifar
Stjórinn janúar

Strákarnir í Stjóranum munum opna veskin í kvöld þar sem janúar-glugginn opnast á leikmannamörkuðum. Þeir Óli og Hjálmar Örn munu einnig fá sérfræðing í sett til að fara yfir kerfi þeirra og gefa áhorfendum eintök af Football Manager 2023.

Í Stjóranum keppast þeir Hjálmar Örn og Óli Jóels um hvor nær betri árangri með lið sitt í fjórðu deildinni í Englandi í Football Manager 2023. Hjálmar stýrir Stockport og Óli stýrir Grimsby.

Strákarnir fá takmarkaðan tíma til að undirbúa lið sín fyrir leiki, til að kaupa leikmenn og ganga frá öðrum málum. Þeir þurfa sömuleiðis að draga áskorunarspil sem eiga að gera þeim erfitt um vik. Til dæmis gætu þeir dregið spil sem bannar þeim að nota leikmenn ef nafn þeirra byrjar á T.

Fylgjast má með streyminu í spilaranum hér að neðan, á Twitchsíðu GameTíví eða Stöð 2 eSport. Stjórinn hefst klukkan níu í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.