Lífið samstarf

Þessi komust í úrslit í Sykurmolanum, lagakeppni X977

X-977

Dómnefnd X-977 hefur nú valið lögin til úrslita í Sykurmolanum, lagakeppni X-977 og Orku náttúrunnar. 

„Fjölbreytnin í lögunum var ótrúleg,"  segir Ómar Úlfur dagskrárstjóri X-977 en yfir 150 lög bárust í Sykurmolann, lagakeppni X-977 sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur. Frestur til að senda inn lag rann út 1. desember og hefur dómnefnd X-977 nú farið yfir öll lögin og valið átta atriði til úrslita. 

„Þessi átta lög fara í spilun á X-977 út janúar mánuð og þá veljum við sigurvegara Sykurmolans 2022. Samhliða þessu mun Danni Dæmalausi útvarpsmaður á X-977 hitta allt listafólkið og leyfa okkur að kynnast því með myndbandsinnslögum á Vísi. Eitt er víst, að framtíðin er björt í íslenskri tónlist," segir Ómar Úlfur.

Lögin sem komust í úrslit eru:

  • Karma Brigade – Alive
  • Winter Leaves – Feel
  • Bucking Fastards – Don Coyote
  • Beef – Góði hirðirinn
  • Blankíflúr & Jerald Coop – Modular Heart
  • Auður Linda – I´m Not The One
  • Merkúr – Faster Burns The Fuse
  • Sóðaskapur – Mamma ver

Veitt verða verðlaun bæði í karla- og kvennaflokki. Verðlaunin eru ekki af verri endandum 250.000kr í hvorum flokki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.