Lífið

„Ef Katla gýs þá er þetta það fyrsta sem hverfur“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kötlujökull
Kötlujökull RAX

„Ég er með jöklaáhuga, alveg svakalegan. Ég flýg reglulega yfir þá og mynda allt sem ég get og ætla að gera það eins lengi og ég get,“ segir ljósmyndarinn og flugmaðurinn Ragnar Axelsson. 

Kötlujökull heillar RAX jafnt að utan sem innan og sagði hann frá því í nýjasta þættinum af RAX Augnablik. Að utan er hann skreyttur pýramídum en að innan er hann skreyttur andlitum. 

„Þessi undraveröld jöklanna er alveg frábær.“

Ljósmyndarinn hefur sérstakan áhuga á íshellum og myndar reglulega andlitin sem hann sér þar birtast.

„Ef Katla gýs þá er þetta það fyrsta sem hverfur.“

Ljósmyndarinn er sannfærður um að Katla muni gjósa fyrr en síðar og þá er óljóst hver afdrif undraheims Kötlujökuls verða.  Frásögnina og myndirnar má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.  

Klippa: RAX Augnablik - Kötlujökull kallar

Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. 

Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.

RAX hefur myndað Ísland mikið á ferlinum, þar á meðal jökla og eldgos. Hefur hann áður talað um þessar myndir í þáttunum RAX Augnablik og má sjá nokkur dæmi hér fyrir neðan. 

Undraveröld íshellanna

Ragnar hefur farið í fjölmarga íshella ásamt Einari Sigurðssyni, einum af helstu frumkvöðlum þess að finna og kanna þessa hella. Það leynast miklir töfrar í aldagömlum jökulísnum og Ragnar sér alltaf eitthvað nýtt þegar hann beinir myndavélinni inn í ísinn, í þeirri undraveröld sem íshellar undir jökli eru.

Íslensku jöklarnir

Ragnar ólst upp við jöklana. Síðustu áratugi hefur hann flogið ótal ferðir yfir jökla landsins og náð þar stórkostlegum myndum.

Tunglið Ísland

Þegar Ragnar flýgur yfir Íslandi og sólin er lágt á lofti og skuggarnir teygja úr sér, þá líður honum eins og geimfara og finnst hann vera að horfa á tunglið.

Sprengigos í Gjálp

Árið 1996 fór Ragnar í tvær ferðir að mynda Gjálpargosið. Annars vegar lenti hann á þyrlu í gígnum og hins vegar myndaði hann hlaup sem varð eftir sprengingu í gígnum, daginn eftir fyrri ferð hans þangað.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.