Tónlist

Gefa út vögguvísur fyrir fullorðna

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Vala Eiríksdóttir og Stefán Örn Gunnlaugsson voru að senda frá sér plötuna Værð.
Vala Eiríksdóttir og Stefán Örn Gunnlaugsson voru að senda frá sér plötuna Værð. Aðsend

Fjölmiðla- og tónlistarkonan Vala Eiríksdóttir var að senda frá sér plötuna Værð ásamt Stefáni Erni Gunnlaugssyni. Platan sækir í gömul íslensk dægurlög sem fullorðið fólk getur tengt við æsku sína. Blaðamaður tók púlsinn á Völu.

Hvaðan sækirðu innblástur í tónlistina?

Þegar ég er að flytja tónlist eftir aðra eins og ég geri að mestu á þessari plötu sæki ég innblásturinn inn á við. Set mig inn í tilfinningarnar sem lagið tjáir, enda sér fólk fljótt í gegnum mann þegar maður er ekki ekta.

Þegar ég er að semja sæki ég innblástur ýmist í eigin upplifanir eða annarra. Stundum skálda ég svo reyndar bara sögur, en ég verð að geta tengt við þær að einhverju leyti.

Hefur platan verið lengi í bígerð?

Við gáfum út vögguvísnaplötu í maí síðastliðnum en fórum svo að fá skilaboð frá fólki á öllum aldri sem sagðist nota plötuna til að róa sig niður. Okkur þótti ótrúlega vænt um það og vildum mæta fullorðna hópnum, án þess að hafa af krílunum, svo við ákváðum að gera plötu í vögguvísnastíl, þ.e. yfirvegaða og afslappaða, nema við sækjum meira í gömul íslensk dægurlög, sem þeir fullorðnu þekkja betur. Mörg þeirra tengja einhverjir við æsku sína og því fylgir ákveðin öryggistilfinning.

Svo reyndar sömdum við Stebbi saman eitt lag á plötunni sem heitir Röddin þín og mamma samdi lag og texta við lagið Á himni er stjarna. Mér þykir sérstaklega vænt um það!

En eftir að við tókum þessa ákvörðun varð platan til á nokkrum vikum. Við þurfum smá að púsla saman ólíkri stundaskrá, en það gekk upp. Ferlið hefur verið jafn afslappað og platan. Við Stebbi erum rosalega samstíga þegar kemur að sköpun og yfirleitt sammála.

Vala og Stebbi.Aðsend

Þetta eru hálfgerðar live upptökur þar sem hann situr við píanóið og ég við míkrófóninn. Svo setjum við bara á upptöku og sjáum hvað gerist. Stundum skreytum við með röddunum og öðrum hljóðfærum og stundum ekki. Bara hvað okkur finnst rétt hverju sinni.

Heimurinn fyrir utan stúdíóið hverfur strax og ég stíg þar inn og ég labba undantekningarlaust þaðan út jarðbundin og hamingjusöm!
Vala í stúdíóinu.Aðsend

Hvað er á döfinni?

Framundan í okkar samstarfi er til dæmis lítið jólaverkefni og annað erlent og svo bara það sem vill verða. Stebbi er að leggja lokahönd á sólóplötu undir nafninu Íkorni, sem ég hvet fólk til að fylgjast með. Ég er að vinna að barnaefni fyrir Stöð 2 þessa dagana, með annað sjónvarpsverkefni í bígerð og svo er ég náttúrulega alltaf á Bylgjunni og að semja. Nóg að gera og gaman að vera til!


Tengdar fréttir

Sköpuðu valdeflandi sjónvarpsefni fyrir börn

„Hugmyndin kviknaði út frá sögustund með dóttur minni,“ segir Kristján Hafþórsson um nýja barnaefnið Hvítatá. Hann átti sjálfur hugmyndina að sögunni og skrifaði handritið.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.