Viðskipti innlent

Mark­miðið að kynna fjöl­breytni ís­lensks land­búnaðar og hrein­leika mat­væla­fram­leiðslu

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll árið 2018.
Frá Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll árið 2018. Aðsend

Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2022 hefst í Laugardalshöll í Reykjavík á föstudaginn og stendur fram á sunnudag.

Í tilkynningu kemur fram að sýningin sé beint framhald af samnefndri sýningu sem haldin var haustið 2018.

Haft er eftir Ólafi M. Jóhannessyni, framkvæmdastjóra sýningarinnar, að markmið sýningarinnar sé að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar og hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu. Þá segir hann að sýningin verði jafnframt öflugur kynningarvettvangur þjónustufyrirtækja í landbúnaði og geti bændur og aðrir gestir kynnt sér það nýjasta í tækjum og hvers kyns rekstrarvörum fyrir landbúnaðinn.

Ólafur segir að mikil gróska sé nú í sveitum landsins og að þær séu að blómstra.

„Við finnum það á viðtölum við bændur að sveitirnar eru að blómstra. Ferðaþjónustan hefur tekið risastökk og svo er öll tækniþróun að létta mjög undir hjá bændum. Þeir eru jafnvel farnir að stýra ýmsu í gripahúsum í gegnum tölvubúnað. Þá eru líka litlir landbúnaðarframleiðendur víða að af landinu með mjög forvitnilega bása.

Fjölbreytileiki landbúnaðarvara eykst stöðugt og er einstaklega gaman að geta tekið þátt í því að kynna alla þessa grósku og fjölbreytileika á svona stórri sýningu en hún fyllir fimm þúsund fermetra sal nýju Laugardalshallar.

Þá erum við afar ánægð með þá fyrirlestradagskrá sem hér er boðið upp á. Fyrirlestar í senn fróðlegir og áhugverðar og nýjar hugmyndir reifaðar. Eitt er víst að það hefur sjaldan verið ríkari þörf á öflugum innlendum landbúnaði og nú um stundir þegar ríkja stríð og plágur. „Hollur er heimafenginn baggi,” er haft eftir Ólafi.

Sýningin er opin á föstudag milli 14 og 19, á laugardag milli 10 til 17 og sunnudag 10 til 17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×