Gular viðvaranir í nótt og á morgun Árni Sæberg skrifar 3. október 2022 23:58 Búast má við mikilli rigningu víða um land í nótt og á morgun. Vísir/Vilhelm Gul viðvörun vegna rigningar á Austfjörðum tók gildi klukkan ellefu í kvöld og gildir til klukkan tíu í fyrramálið. Þá hafa gular viðvaranir verið gefnar út fyrir Vestfirði og Strandir og Norðurland vestra sem taka gildi á morgun.
Búast má við vexti í ám og lækjum á Austfjörðum í nótt. Auknar líkur verða á skriðuföllum og grjóthruni. Á morgun má búast við því sama á Vestfjörðum þar sem gul viðvörun vegna talsverðrar eða mikillar rigninar tekur gildi klukkan 15 og gildir til klukkan 08 á miðvikudag. Á Ströndum og Norðurlandi vestra mun sama viðvörun vera í gildi milli klukkan 16 á morgun og klukkan 18 á miðvikudag. Þá er búist við allhvassri norðanátt (13-18 m/s) með rigningu nærri sjávarmáli á Vestfjörðum. Slyddu eða snjókomu á fjallvegum þar sem búast má við erfiðum akstursskilyrðum. Gul viðvörun verður í gildi milli klukkan 20 á morgun og klukkan 10 á miðvikudag. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er spáð Norðvestan 10-18 m/s með rigningu nærri sjávarmáli. Slyddu eða snjókomu á fjallvegum þar sem búast má við erfiðum akstursskilyrðum og á það til dæmis við um Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði, að því er segir á vef Veðurstofunnar. Gul viðvörun verður í gildi þar milli klukkan 22 á morgun og klukkan 23:59 á miðvikudag.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Innlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira