Veiði

Flottir sjóbirtingar að veiðast víða

Karl Lúðvíksson skrifar
Flottur sjóbirtingur úr Tungulæk.
Flottur sjóbirtingur úr Tungulæk. Mynd: Tungulækur FB

Núna þegar flestar laxveiðiárnar eru búnar að loka fyrir veiði eru veiðimenn farnir að beina sjónum sínum að sjóbirtingsveiði en hún er oftar en ekki best á þessum árstíma.

Núna er sjóbirtingurinn að ganga í árnar og við erum að heyra af vænum birtingum ansi víða. Það þarf ekki að fara lengra en í Varmá en þar hafa verið að veiðast mjög vænir sjóbirtingar, 70-80 sm og nokkrir sem fullyrt er að hafa verið stærri en það sloppið af færi veiðimanna. Í Tungulæk er líka búin að vera góð veiði og það sem við höfum frétt úr Vatnamótum og Tungufljóti lofar líka góðu. Veður hefur verið veiðimönnum erfitt í september en vonandi verður október betri en það er bara fátt eins  gaman og krefjandi á sama tíma eins og að kasta flugu í oft köldu og vindasömu veðri til að freista þess að glíma við væna sjóbirtinga. Þetta er veiði fyrir harðjaxla.






×