Sport

Arna Sif: „Mögulega besta tímabilið á ferlinum"

Hjörvar Ólafsson skrifar
Arna Sif Ásgrímsdóttir hefur leikið afar vel í hjarta varnarinnar hjá Val á þessu keppnistímabili. 
Arna Sif Ásgrímsdóttir hefur leikið afar vel í hjarta varnarinnar hjá Val á þessu keppnistímabili.  Vísir/Diego

Arna Sif Ásgrímsdóttir hefur leikið frábærlega á sínu fyrsta keppnistímabili með Val síðan hún gekk í raðir félagsins á nýjan leik síðasta haust. Arna Sif segir nýlokna leiktíð mögulega vera þá bestu á sínum ferli. 

„Þetta er mögulega mitt besta tímabil á ferlinum. Ég er að spila allt öðruvísi hér en hjá Þór/KA undanfarin ár. Hérna erum við mikið meira með boltann í leikjunum og ég er meira í að bera boltann upp úr vörninni.

Ég er bara búin að vera mjög sátt við eigin frammistöðu á þessu tímabili og þetta er mögulega mitt besta suamr á ferlinum. Það er frábært að spila í þessu Valsliði og auðvelt að blómstra í þessu umhverfi," sagði Arna Sif sem spilaði með Val árin 2016 og 2017. 

„Það voru vissulega vonbrigði að komast ekki lengra í Meistaradeildinni að þessu sinni en svekkelsið þar gerir bara það að verkum að við komum hungraðar inn í undirbúningstímabilið eftir smá frí.

Að vinna tvöfalt er frábær árangur og eitthvað sem við getum verið mjög stoltar af. Svo er bara verkefnið að viðhalda þessum árangri og gera betur í Evrópu," sagði varnarmaðurinn sterki um framhaldið.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×