Rithöfundurinn Hilary Mantel er látin Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2022 13:09 Lafði Hilary Mantel gaf út þriðju og síðastu bókina í Wolf Hall-flokknum, The Mirror and the Light, árið 2020. Getty Breski rithöfundurinn, Lafði Hilary Mantel, er látin, sjötug að aldri. Mantel er þekkt fyrir þríleikinn sem kenndur er við Wolf Hall. Mantel varð fyrsta konan til að hljóta hin virtu Booker-bókmenntaverðlaun tvisvar.
Útgefandi Mantel staðfestir andlátið í samtali við breska fjölmiðla. Mantel hlaut Booker-verðlaunin fyrir Wolf Hall, fyrstu bókina í Thomas Cromwell-bókaflokknum sem kom út árið 2009, og svo aftur fyrir framhaldssöguna Bring Up the Bodies sem kom út árið 2012. Í yfirlýsingu frá útgefandanum HarperCollins segir að Hilary hafi látist í faðmi fjölskyldu og vina. Andlátið hafi þó borið brátt að. Wolf Hall-sögurnar eru sögulegar skáldsögur um uppgang Thomas Cromwell innan bresku konungshallarinnar á tímum Hinriks áttunda konungs. Þriðja og síðasta bókin í flokknum, The Mirror and the Light, var gefin út árið 2020. Þríleikurinn hefur selst í rúmlega fimm milljónum eintaka og hafa bækurnar verið þýddar á rúmlega fjörutíu tungumál.
Bókmenntir Andlát Menning Bretland Mest lesið Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum Lífið Jon Landau er látinn Bíó og sjónvarp Eins söguleg og skáldsaga getur orðið Lífið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Tíska og hönnun „Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“ Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira