Lífið

Gat ekki stundað kynlíf við eigin tónlist

Stefán Árni Pálsson skrifar
Króli sagði mjög  svo skemmtilega sögu í síðasta þætti.
Króli sagði mjög  svo skemmtilega sögu í síðasta þætti.

Ný þáttaröð af Allskonar kynlíf fór í loftið á dögunum. Í öðrum þætti var fjallað um fantasíur og könnuðu Ahd og Sigga Dögg kynfræðingur það sem skemmtilegum leiðum.

Í þættinum var rætt við Kristinn Óla Haraldsson, Króla, og var hann spurður hvort einhver hefði sagt honum frá fantasíu sem viðkomandi hafði um hann.

„Ég hef lent í frekar áhugaverðu atviki sem ég hélt að væri misskilningur og það kom í ljós frekar hratt að þetta væri ekki misskilningur,“ segir Króli og heldur áfram.

„Ég var að hitta stelpu og við vorum að sofa saman. Hún stoppar og spyr hvort hún megi setja á tónlist og ég segi já minnsta málið. Hún setur á einhvern playlista og fyrsta lagið var í lagi en síðan kemur lagið á eftir því og það var lag með mér og Jóa [Pé]. Ég stoppa og bið um að við skiptum um lag þar sem mér fannst þetta svolítið óþægilegt. Hún segir nei, höldum bara áfram. Þá sagði ég, nei mig langar það í rauninni ekki. Og ég gat ekki haldið áfram eftir þetta vegna þess að mér fannst þetta svo viðbjóðslega skrýtið.“

Hér að neðan má sjá atriði úr síðasta þætti af Allskonar kynlífi sem var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Klippa: Gat ekki stundað kynlíf við eigin tónlist





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.