Tónlist

Missti röddina og hætti í miðjum tónleikum

Samúel Karl Ólason skrifar
The Weeknd á tónleikum í Kanada í síðasta mánuði.
The Weeknd á tónleikum í Kanada í síðasta mánuði. AP/Darryl Dyck

Tónlistarmaðurinn Weeknd, sem heitir réttu nafni Abel Tesfaye, og er frá Kanada, hætti að syngja á tónleikum í gær og gekk af sviðinu eftir að hafa misst röddina. Hann var hálfnaður með þriðja lag sitt þegar hann gekk út og skildi um sjötíu þúsund undrandi áhorfendur eftir.

Hann sneri þó aftur á svið og sagðist vera miður sín yfir því að geta ekki gefið þeim þá tónleika sem þau áttu skilið.

„Ég vil biðja ykkur afsökunar. Ég veit ekki hvað var að gerast þegar ég öskraði, en ég missti röddina,“ sagði hann samkvæmt frétt Yahoo. „Þetta er að gera út af við mig. Ég vil ekki hætta en ég get ekki gefið ykkur þá tónleika sem ég vil gefa ykkur.“

Tesfaye sagði að allir myndu fá endurgreitt og að hann myndi halda aðra tónleika í Los Angeles um leið og hann gæti. Hann ítrekaði það svo á Twitter.

Yahoo segir tónleikagesti hafa verið óvissa um hvað hann hefði sagt og hvort það hefði mögulega verið hluti af sýningunni. Um tveimur mínútum eftir að Tesfaye steig af sviðinu var hins vegar kveikt á ljósunum og fólki varð ljóst að tónleikarnir væru búnir.

Myndbönd af atvikinu og útskýringu Tesfaye má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.