Rólegra veður í vændum en síðustu rigningardaga Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2022 07:09 Gert er ráð fyrir að hiti verði á bilinu átta til fjórtán stig í dag. Vísir/Vilhelm Mun rólega veður er í vændum eftir tvo væna rigningardaga. Þó má búast við skúrum um mest allt land í dag og einhverri vætu norðan- og austantil á morgun.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Spáð er suðlægri eða breytilegri átt, þrír til átta metrar á sekúndu, og skúrir í dag, en snýst svo í norðaustan, fimm til metrar á sekúndu, norðantil í kvöld. Gert er ráð fyrir að hiti verði á bilinu átta til fjórtán stig í dag. „Svo er að sjá að helgarveðrið verði lyngt og gott víðast hvar. Hiti á bilinu 10 til 15 stig að deginum en þar sem daginn er farið að stytta eykst dægursveiflan og ef bæði er, mjög hægur vindur og bjart yfir er oft stutt í næturfrostið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast norðvestantil. Rigning um landið austanvert, annars þurrt að kalla og bjart með köflum sunnan- og suðvestanlands. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast sunnan heiða. Á laugardag: Hæg breytileg átt og bjartviðri, en norðaustan strekkingur með suðausturströndinni. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast suðvestantil. Á sunnudag: Breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjartviðri, en skýjað vestantil. Hiti 9 til 14 stig. Á mánudag: Norðaustlæg átt og víða léttskýjað, en að mestu skýjað með norðurströndinni. Rigning suðaustanlands seinnipartinn. Hiti 7 til 15 stig, svalast norðvestantil. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir austlæga átt og bjartviðri, en skýjað og dálítil væta um landið suðaustanvert. Milt í veðri.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Innlent Fleiri fréttir Áfram kalt og bætir í vind á morgun Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Áfram köld og norðlæg átt Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Allt að tuttugu stiga hiti Næsta lægð væntanleg á morgun Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Bætir smám saman í vind Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Rigning eða súld um mest allt land Búist við austlægri átt Fimmtán stiga frost á Grímsstöðum á Fjöllum í nótt Élja- og snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri Vestan- og suðvestanátt með skúrum eða éljum Lægð nálgast úr suðvestri Sjá meira