Sport

Cavani semur við Valencia

Atli Arason skrifar
Edinson Cavani var í tvö ár hjá Manchester United, frá 2020-2022.
Edinson Cavani var í tvö ár hjá Manchester United, frá 2020-2022. EPA-EFE

Edinson Cavani, fyrrum framherji Manchester United, mun spila með Valencia á Spáni á næsta tímabili en spænska félagið tilkynnti komu leikmannsins rétt í þessu.

Cavani sem er 35 ára gamall kemur til Valencia á frjálsri sölu eftir að United losaði sig við leikmanninn fyrr í sumar. Cavani skrifar undir tveggja ára samning við Valencia þar sem hann mun fá um 2 milljónir evra í árslaun

Leikmaðurinn lék 59 leiki með Manchester United þar sem hann skoraði 19 mörk en Cavani hefur á 14 ára leikmannaferli sínum meðal annars leikið með PSG, Napoli og Palermo.

Valencia spilar gegn Atletico Madrid seinna í kvöld en félagaskiptin kláruðust ekki í tæka tíð fyrir leikinn. Cavani gæti því spilað sinn fyrsta leik fyrir Valencia næsta sunnudag þegar liðið tekur á móti Getafe í spænsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×