Lægðin viðheldur allhvassri norðvestanátt austantil Atli Ísleifsson skrifar 26. ágúst 2022 07:25 Enn rignir á Norður- og Austurlandi og þar verður svalt í veðri. Vísir/Vilhelm Lægð gærdagsins er enn stödd úti fyrir austurströndinni og viðheldur hún allhvassri norðvestanátt á austanverðu landinu. Vindurinn getur verið varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.
Á vef Veðurstofunnar segir að enn rigni á Norður- og Austurlandi og að svalt sé í veðri þar. „Seinnipartinn í dag dregur úr vindi og rigningu á þessum slóðum. Á sunnan- og vestanverðu landinu er annað uppi á teningnum. Þar er útlit fyrir norðan golu eða kalda og sólríkt veður í dag og hiti 16-17 stig þar sem best lætur. Á morgun verður áðurnefnd lægð á bak og burt og hæð situr yfir landinu. Það þýðir að vindur verður hægur og víðast hvar bjart og fallegt veður. Líklega svipaður hámarkshiti á morgun og í dag, um 17 stig á Faxaflóasvæðinu og í uppsveitum á Suðurlandi.“ Veðurspá fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti 9 til 16 stig yfir daginn, hlýjast á Vesturlandi. Á sunnudag: Suðlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 vestast á landinu. Skýjað sunnan- og vestanlands og sums staðar dálítil væta. Bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Á mánudag og þriðjudag: Suðaustan 8-15 m/s og súld eða rigning á köflum, en hægari vindur og bjartviðri á norðanverðu landinu. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast fyrir norðan. Á miðvikudag: Suðaustlæg átt og vætusamt, en þurrt og bjart norðantil á landinu og hlýtt þar. Á fimmtudag: Austlæg átt og rigning með köflum, en þurrt að kalla norðvestantil á landinu. Kólnar heldur.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Innlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira