Veiði

Ytri Rangá ennþá á toppnum

Karl Lúðvíksson skrifar
Ytri-Rangá er aflahæst laxveiðiánna það sem af er sumri,
Ytri-Rangá er aflahæst laxveiðiánna það sem af er sumri, Mynd / Garðar

Í nýjum vikulegum tölum frá Landssambandi Veiðifélaga  bera Rangárnar höfuð og herðar yfir næst ár á listanum en Ytri Rangá er þó ennþá hæst.

Veiðin í Ytri er búin að vera mjög góð í sumar og seinni parturinn er búinn að vera mjög líflegur. Heildarveiðin í ánni er komin í 2.507 laxa og miðað við hvað reyndir veiðimenn við ánna segja þá er alls ekki ólíklegt að hún fari í 4.000 laxa á þessu tímabili. Eystri Rangá er komin í 2.074 laxa og þar hefur að sama skapi verið fín veiði og lax er ennþá að ganga enda fást bjartir laxar nær daglega þó svo að ágúst mánuður sé brátt á anda.

Hæst á listanum yfir náttúrulegu árnar er Þverá-Kjarrá með 1.155 laxa en með góðum endasprett er mjög líklegt að hún nái heildarveiðinni í fyrra sem var 1.377 laxar.  Norðurá er komin yfir 1.000 laxa og 99 betur sem er samt töluvert undir heildarveiðinni í fyrra sem var 1.431 lax. Annað áhugavert á listanum má nefna að Elliðaárnar eru komnar yfir veiðina í fyrra en nú stendur veiðitalan þar í 622 á móti 617 allt sumarið 2021. Blanda er komin yfir sumarveiðina 2021 sem var 418 laxar en heildartalan í henni núna er 531 lax. Heildarlistann má finna á www.angling.is






×