Allt að þrjátíu metrar á sekúndu Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 31. júlí 2022 09:01 Viðvaranirnar eru í gildi til klukkan 18.00 í dag. Veðurstofan Gul viðvörun er enn í gildi á Norðurlandi eystra og vindhviður geta náð allt að þrjátíu metrum á sekúndu austan Húsavíkur. Mikilvægt er að tryggja lausa hluti utandyra og veðrið getur verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
Á Austurlandi að Glettingi er einnig gul viðvörun en gert er ráð fyrir norðvestan og vestanátt 10-15 metrum á sekúndu. Staðbundnar vindhviður geta farið upp í 30 metra á sekúndu. Viðvaranirnar eru í gildi til klukkan 18 síðdegis. Öllu mildara verður á Suðurlandi en í dag ert gert ráð fyrir vestlægri átt, víða 5-13 metrum á sekúndu. Rigning með köflum á norðanverðu landinu en bjartvirði suðaustan til. Lægja tekur á morgun með norðlægri átt, 3-8 metrum á sekúndu vestan og norðvestanlands. Allvíða rigning um norðanvert landið en skýjað eða léttskýjað sunnanlands. Hiti á bilinu fimm til fjórtán stig. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðlæg átt, 3-8 m/s en 8-13 m/s vestan og noðrvestanlands. Allvíða rigning um landið norðanvert og á skúrir á Austfjörðum en skýjað með köflum eða léttskýjað sunnantil. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast syðst. Á miðvikudag: Norðan og norðvestan 5-13 m/s, en heldur hvassara á annesjum austanlands. Talsverð rigning á norðan- og austanverðu landinu, en annars skýjað með köflum. Áfram svalt norðantil, en milt syðra. Á fimmtudag: Minnkandi norðvestanátt og úrkomulítið. Léttir til víða um land og hlýnar lítið eitt. Á föstudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með dálítilli vætu vestantil, en bjartviðri fyrir austan og hlýnandi veður. Hiti að 16 stigum norðaustantil. Á laugardag: Gengur í sunnan 8-13 með rigningu vestanlands en hægari suðlæg átt og þurrviðri um landið norðan og austanvert. Hiti 12 til 17 stig yfir daginn.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira