Tónlist

Boncyan gefur út ábreiðu af Þorparanum fyrir Versló

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þremenningarnir í Boncyan.
Þremenningarnir í Boncyan. Joe Shutter

Hljómsveitin Boncyan hefur gefið út ábreiðu af Þorparanum hans Pálma Gunnarssonar, svona rétt fyrir Verslunarmannahelgi. Sveitina skipa þremenningarnir Tom Hannay, frá Bretlandi, Janus Rasmussen og Sakaris Emil Joensen sem eru frá Færeyjum. 

Þetta er fyrsta skiptið sem söngvari sveitarinnar,  Tom, syngur á íslensku. Þremenningarnir hafa allir flutt hingað til lands til að vinna við tónlistarframleiðslu. 

Þessi nýja útgáfa af Þorparanum er innblásin af tónlistarstefnu electro-pop og er því fullkomin til að dansa við. 

„Ég hef heyrt þetta lag svo oft og elska það. Þetta var dálítið stór biti vegna þess að þetta er ekki auðveldasta lagið til að syngja, öll löngu orðin og takturinn í laginu gerðu þetta að alvöru áskorun,“ segir Tom. 

„Ég veit líka hvað þetta lag er vinsælt og við vorum hræddir um að fólk kæmist í uppnám ef það heyrði lagið „eyðilagt“ af útlenskum söngvara. Ætli við verðum ekki að leyfa fólkinu að meta hvort það hafi gerst.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.