Nýja auglýsingin fyrir EM: Ekkert stoppar íslenska kvennalandsliðið Icelandair kynnir 9. júlí 2022 13:14 Icelandair stendur á bak við íslenska landsliðið á EM í Englandi og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama.. Kvennalandsliðið fær stuðning úr öllum áttum í nýrri auglýsingu frá Icelandair fyrir EM kvenna.
Undanfarin ár hefur skapast hefð fyrir því að birta veglegar kvikmyndaðar auglýsingar þegar landslið Íslands í knattspyrnu halda á stórmót. Engin undantekning er á því í ár, en íslenska kvennalandsliðið tekur þátt í Evrópumeistaramóti kvenna sem fram fer á Englandi í júlí. Hugmyndin að auglýsingu ársins kviknaði út frá umræðunni um æfingavellina sem D-riðill mun leika á þegar mótið hefst í júlí. Í myndinni sjáum við ungan stuðningsmann uppgötva leik kvennalandsliðsins fyrir algjöra tilviljun. Leikurinn spyrst út og stuðningsmennirnir flykkjast að. Skilaboð auglýsingarinnar eru þau að það er sama hvar liðið okkar spilar – við munum koma með stuðninginn. Ekkert stoppar liðið okkar í því að mæta með sinn besta leik og ekkert stoppar stuðningsfólkið – íslensku þjóðina – frá því að mæta. Ekki einu sinni litlir vellir. Klippa: Kvennalandsliðið fær stuðning úr öllum áttum Komdu með stuðninginn! Efnistök auglýsinganna hafa verið misjöfn í gegnum tíðina en ávallt til þess fallnar að ýta undir stemningu og keppnisskap þjóðarinnar. Í ár var sú leið valin að hnýta í skipuleggjendur Evrópumeistaramótsins sem bjóða íslenska kvennalandsliðinu að leika á æfingavöllum í sínum riðli. Þetta útspil var harðlega gagnrýnt, ekki síst af sjálfum landsliðskonunum, og þótti undarlegt í ljósi þess að áhugi á kvennaknattspyrnu fer vaxandi á heimsvísu. Skemmst er að minnast þess þegar seldist upp á leik kvennaliða á Camp Neu í Barcelona og ýmsar erlendar kannananir benda til þess að áhuginn sé vaxandi, en umgjörð kvennafótboltans hafi ekki náð að fylgja áhuganum eftir. „Þessi auglýsing á að ögra. Liðið okkar – landsliðið okkar – mun spila á æfingavöllum í sínum riðli á þessu stærsta móti álfunnar. Það er sama hvernig því er snúið, það er smánarlegt fyrir jafn stórt mót og EM kvenna. En við vitum líka að stelpurnar okkar mæta alltaf til að berjast, sama hverjar aðstæðurnar eru. Við viljum fagna þeim. Við höfum líka séð í verki hvað íslenskt stuðningsfólk getur breytt miklu fyrir leikinn og stemningin er alltaf í okkar höndum – sama hvernig vellirnir eru,“ segir Gísli S Brynjólfsson, markaðsstjóri Icelandair. Ekki alltaf dans á rósum Afreksíþróttafólk þekkir vel að leiðin á toppinn getur verið þyrnum stráð og það er frústrerandi að spila í heimi þar sem íþróttafólk hefur hingað til þurft að sætta sig við kynbundna mismunun. En er þetta að breytast? „Ég held að þetta sé að breytast og ég held að það sé líka mjög frústrerandi – bæði fyrir leikmenn og stuðningsfólk – að vilja gefa sig öll í góðan leik en hafa ekki tækifæri til þess vegna þess að áhuginn er vanmetinn. Við vildum sýna þessa frústrasjón í myndinni og við fáum að sjá hvernig liðið bregst við mótlæti á hráan og mjög heiðarlegan hátt. Í raun er skot í myndinni sem kom alveg hrátt frá Elísu, sem sýnir mjög sannar og óritskoðaðar tilfinningar og við vildum ekki klippa það út,“ segir Gísli þegar hann er spurður að því hvort eitthvað í auglýsingunni muni orka tvímælis. Stórkostlegt kvennalandslið Á meðan karlalandslið Íslands fékk hetjumeðferð eftir sitt fyrsta Evrópumeistaramót 2016 voru margir sem bentu á að kvennalandsliðið hefði fyrir löngu spilað á stórmóti og ættu skilið að fá sömu meðferð. Því var ákveðið að auglýsingin þetta árið myndi senda tóninn en á sama tíma sýna að áhuginn á kvennabolta væri svo sannarlega til staðar. „Já, við viljum ögra. Málefnið er þannig. Við getum ekki sent frá okkur ótrúlega næs og huggulega auglýsingu þegar staða mála í kvennaboltanum er sú sem hún er. Vissulega verða hlutirnir betri og betri, áhuginn er að aukast, en á meðan landsliðum er boðið upp á æfingavelli er mikið verk óunnið,“ segir Gísli að lokum.
Á bak við tjöldin Landslið kvenna í fótbolta EM 2022 í Englandi Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira