Tónlist

Taktu þátt í að búa til „helvítis djöfulsins hávaða“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Curver Thoroddsen er að safna saman riffum sem hann ætlar að spila öll á sama tíma á innsetningunni Helvítis djöfulsins hávaði á Neskaupstað þann 9. júlí.
Curver Thoroddsen er að safna saman riffum sem hann ætlar að spila öll á sama tíma á innsetningunni Helvítis djöfulsins hávaði á Neskaupstað þann 9. júlí. Curver

Á morgun, laugardaginn 9. júlí, opnar Curver Thoroddsen hljóðinnsetninguna Helvítis djöfulsins hávaða (riffasúpu dauðans) í Gömlu netagerðinni á Neskaupstað. Innsetningin er hluti af listahátíðinni Innsævi í Fjarðabyggð og er verkið gert í samvinnu með Eistnaflugi og gestum þess.

Verkið Helvítis djöfulsins hávaði (riffasúpa dauðans) samanstendur af tuttugu hátölurum sem er dreift um rýmið og í hverjum hátalara hljómar eitt þungarokksriff síendurtekið. Saman mynda riffin „helvítis djöfulsins hávaða“ sem Curver segir að sé frasi sem oft hafi verið notaður af fólki til að lýsa þungarokki á neikvæðan hátt.

Nýlega setti Curver inn færslu á Facebook-hóp dauðarokkara þar sem hann bað fólk um að kjósa og koma með uppástungur að flottum riffum sem yrðu partur af „Riffasúpu dauðans.“ Fólk getur einnig kosið um riffin á Facebook-síðum Innsævis og Eistnaflugs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.