Hægur vindur og víða líkur á skúrum Atli Ísleifsson skrifar 1. júlí 2022 08:23 Hiti á landinu verður á bilinu níu til sextán stig. Vísir/Vilhelm Nú í morgunsárið er víða þoka norðan- og austantil á landinu, en það mun líklega rofa til allvíða þegar líður á morguninn.
Á vef Veðurstofunnar segir að annars verði fremur hægur vindur í dag, skýjað með köflum og víða líkur á skúrum, einkum síðdegis inn til landsins. Hiti á landinu verður á bilinu níu til sextán stig. „Norðan og norðvestan gola eða kaldi á morgun. Skýjað og sums staðar dálítil væta, en bjart með köflum á Suðurlandi. Hiti 7 til 12 stig, en að 19 stigum sunnantil á landinu. Annað kvöld bætir í vind og fer að rigna austanlands. Á sunnudag er svo útlit fyrir ákveðna norðvestanátt með rigningu og svölu veðri á Norður- og Austurlandi, en sunnan- og vestantil á landinu verður úrkomulítið og talsvert mildara,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Norðan og norðvestan 8-15 m/s. Rigning á Norður- og Austurlandi og hiti 4 til 9 stig. Þurrt að kalla sunnan- og vestantil með hita 8 til 15 stig, en dálitlar skúrir syðst á landinu. Á mánudag: Norðvestan 10-15 á norðaustanverðu landinu, en hægari í öðrum landshlutum. Bjart með köflum, en dálítil væta á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en þykknar upp með lítilsháttar vætu á vestanverðu landinu. Hiti 10 til 16 stig. Á miðvikudag: Suðvestanátt og súld eða rigning með köflum, en þurrt að kalla á Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Suðvestanátt og dálítil væta víða um land. Milt í veðri.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira