Veiði

Fín byrjun í Tungufljóti í Biskupstungum

Karl Lúðvíksson skrifar
Einn af fjórum löxum sem Jónas landaði við opnun á Tungufljóti í Biskupstungum
Einn af fjórum löxum sem Jónas landaði við opnun á Tungufljóti í Biskupstungum Mynd: Árni Baldursson FB

Tungufljót í Biskupstungum er á sem flestir veiðimenn myndi ætla að fari ekki í gang fyrr en líða tekur á sumarið.

Það er nú ekki svo því nú þegar hafa líklega á annan tug laxa veiðst nú þegar og það er töluvert líf að sjá við fossinn Faxa en þar er líka einn aðalveiðistaðurinn í ánni. Tungufljót hefur ekki verið mikið stundað frá opnun eftir okkar heimildum en það ætti kannski að fara setja það á blað því áin er eitt af þeim vatnasvæðum sem ætti að njóta þess afraksturs sem upptaka neta í Ölfusá og Hvítá er að skila. 

Árnar sem upptaka netana ætti að hafa áhrif á og er í raun þegar farin að hafa áhrif á eru Sogið, Tungufljót og Stóra Laxá en sú síðast nefnda opnaði efsta svæðið sitt fyrir veiðimönnum í fyrradag og þar var ein besta opnun í Stóru Laxá sem menn muna eftir. Tungufljót gæti þess vegna átt töluvert inni og það verður áhugavert að sjá hvernig veiðin verður í júlí þegar stærstu göngurnar eru að skila sér.






×