Norðlæg átt ríkjandi á landinu Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2022 07:12 Hitinn mun fara upp í tólf stig sunnan- og austantil í dag. Vísir/Vilhelm Norðlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag, þar sem vindur verður yfirleitt á bilinu fimm til tíu metrar á sekúndu. Víða á Vesturlandi verður hins vegar tíu til fimmtán metrar, einkum í vindstrengjum á Snæfellsnesi og Barðaströndinni.
Veðurstofan spáir að það verði lítilsháttar skúrir eða rigning með köflum norðantil, en nokkuð efnismeiri skúrir syðst. „Bjart með köflum austan- og vestanlands. Er líður á daginn bætir í úrkomu um norðanvert landið. Hitanum er nokkuð misskipt en norðanáttin dregur með sér kalt loft og hiti á Norðurlandi verður á bilinu 3 til 6 stig, en allt að 12 stig sunnan- og austantil,“ segir um veðrið í dag. Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan 5-13 m/s, hvassast við austurströndina. Dálítil rigning á norðurhelmingi landsins og slydda til fjalla. Skýjað með köflum á sunnanverðu landinu og stöku skúrir syðst. Hiti frá 2 stigum fyrir norðan, upp í 12 stig á Suðurlandi. Á laugardag: Norðlæg átt 5-13 m/s, hvassast austast. Lítilsháttar væta á Norðausturlandi, skýjað austanlands, en yfirleitt bjart sunnan heiða. Hiti 3 til 13 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á sunnudag: Norðlæg átt, 8-13 m/s. Rigning um austanvert landið en annars skýjað með köflum og þurrt. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á mánudag: Norðlæg átt með dálítilli vætu, en þurrt suðvestantil. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Norðvestlæg átt með rigningu fyrir norðan, en þurrt að kalla sunnantil. Á miðvikudag: Útlit fyrir breytilega átt og vætu á víð og dreif.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira