Hundraðasta sýningin á Kardemommubænum um helgina Þjóðleikhúsið 27. maí 2022 12:17 Laugardaginn 28. maí stíga leikarar í Þjóðleikhúsinu á svið í hundraðasta sinn í hlutverkum sínum í Kardemommubænum. Nú eru tæp tvö ár frá frumsýningu og á þeim tíma hafa ríflega 40.000 gestir komið að sjá sýninguna. En allt tekur enda og nú er komið að leiðarlokum að sinni. Þetta var sjötta uppsetning Þjóðleikhússins á Kardemommubænum, en sýningar Torbjörns Egners hafa notið ótrúlegra vinsælda frá árinu 1960 þegar Kardemommubærinn var settur upp í fyrsta sinn.
Nú geta allir sungið með 100. sýningin á Kardemommubænum verður sérstök „Syngdu-með-sýning“ þar sem allir geta tekið hraustlega undir; Fussa og sveia, læðast hægt og hljótt og verða blíðir á manninn og auðvitað alveg handvissir um að húfan þeirra hafi verið þarna í gær. Gjöf Egners til Þjóðleikhússins og þjóðarinnar allrar Egner þótti afar vænt um þær góðu viðtökur sem verk hans hlutu hér á landi, og hann tengdist Þjóðleikhúsinu og starfsfólki þess nánum böndum. Þegar frumuppfærslan var tekin til sýninga að nýju árið 1965 að Egner viðstöddum tilkynnti hann að hann gæfi Þjóðleikhúsinu höfundarréttartekjur af Kardemommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi í hundrað ár. Örn Árnason og hlutverkin öll „Það verða auðvitað blendnar tilfinningar að segja skilið við Bastían“, segir Örn Árnason en hann hefur nú afrekað það á síðustu 20 árum að leika alla ræningjana auk bæjarfógetans góðkunna. Örn Árnason leikari „Nú þetta fer líklega aftur á svið eftir sirka 10 ár og þá á maður auðvitað bullandi séns í að leika Tóbías í turninum“, bætir Örn við vongóður. „En ef ég verð orðinn of gleyminn þegar þar að kemur þá getur maður alltaf leikið úlfaldann?“ Faðir Arnar, Árni Tryggvason, lék Bastían bæjarfógeta árið 1974, en alls lék hann í sex Egner-sýningum á leikferli sínum, og var hinn eini sanni Lilli klifurmús í augum margra kynslóða.
Leikhús Menning Tímamót Mest lesið Morgunblaðið skammað fyrir að birta óvart lítið merki Neytendur 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Stytta skammarkrókinn til muna Neytendur Gjaldþrota meðhöndlari Viðskipti innlent Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Viðskipti innlent Bobbingastaður í bobba Viðskipti erlent Semja um fjögurra milljarða króna lán Viðskipti innlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Viðskipti innlent E. coli í frönskum osti Neytendur Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira