Cocoa Puffs snýr aftur í verslanir Eiður Þór Árnason skrifar 24. maí 2022 09:07 Fjölmargir aðdáendur Cocoa Puffs geta nú tekið gleði sína á ný. Vísir/Vilhelm Cocoa Puffs er væntanlegt aftur í verslanir á næstu dögum en morgunkornið hvarf af íslenskum markaði í byrjun seinasta árs. Uppskrift súkkulaðikúlnanna hefur nú verið breytt og er fyrsta sendingin þegar komin til landsins að sögn umboðsaðila.
Óhætt er að segja að sölustöðvunin hafi komið mörgum aðdáendum vörunnar í opna skjöldu og gripu margir til þess ráðs að hamstra morgunkornið í verslunum. Sömuleiðis gripu söluaðilar til ýmissa ráðstafanna í tilraun sinni til halda þessari eftirsóttu vöru áfram í sölu. Greint er frá endurkomunni í tilkynningu frá umboðsaðilanum. Að sögn bandaríska framleiðandans General Mills var það ný uppskrift sem gerði það að verkum að óheimilt var að selja vöruna lengur á Evrópska efnahagssvæðinu. Minni sykur og meira prótein Að sögn Nathan & Olsen, sem hefur innflutt morgunkornið hingað til lands til fjölda ára, hefur uppskriftinni verið breytt aftur og samrýmist nú evrópulöggjöf. „Sú breyting gerir það að verkum að við fáum loksins Cocoa Puffs aftur til Íslands og landsmenn fá aftur þetta vinsæla morgunkorn með minna sykur- og fituinnhaldi og meira próteini,“ segir í tilkynningunni frá umboðsaðilanum. „Við teljum að framleiðanda hafi tekist mjög vel til og við erum mjög ánægð með að geta boðið landsmönnum aftur upp á hið frábæra vörumerki Cocoa Puffs líkt og við höfum gert undanfarna áratugi,“ segir Ari Fenger, eigandi Nathan & Olsen. Cocoa Puffs ekki eins vinsælt í Evrópu Lísa Björk Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Nathan & Olsen, sagði í samtali við Vísi í október síðastliðnum að uppi væri snúin staða og framleiðandinn General Mills væri ekki tilbúinn til að sérframleiða vöru fyrir íslenskan markað. „Morgunkorn er dálítið séríslenskt fyrirbrigði sem er arfleitt frá Bandaríkjunum. Morgunverðartrend eru öðruvísi annars staðar í Evrópu svo hún hefur ekki fengist þessi Ameríkuvara sem við höfum verið að bjóða upp á.“ Hún bætti þó við að General Mills vildi reyna að koma með eitthverja aðra vöru í staðinn. „Ég er alveg bjartsýn á að við finnum eitthvað en hvort neytendur verði ánægðir með það verður bara að koma í ljós. Maður vonar alltaf það besta,“ sagði Lísa Björk á seinasta ári.
Matur Verslun Neytendur Tengdar fréttir Leyft að selja gamlar birgðir: „Þetta verður ekki flutt aftur til landsins“ Hagkaup fékk nýlega heimild hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja síðustu pakkana sína af Cocoa Puffs. Þeir höfðu safnað ryki í vöruhúsi eftir að tilkynnt var að ekki væri lengur heimilt að selja morgunkornið á Íslandi. Vörurnar voru fluttar til landsins síðasta sumar og hefðu að óbreyttu verið urðaðar. 11. janúar 2022 17:22 Harka færist í baráttuna um framtíð Cocoa Puffs á Íslandi Aðdáendur Cocoa Puffs vöknuðu upp við vondan draum í lok mars þegar umboðsaðili morgunkornsins tilkynnti að það yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Meira en hálfu ári síðar er enn hægt að fá súkkulaðikúlurnar í völdum verslunum en óvissa ríkir um framtíðina. Heilbrigðiseftirlitið hefur krafist þess að varan verði endanlega tekin úr sölu. 21. október 2021 08:00 ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl. 19. apríl 2021 15:44 Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. 31. mars 2021 13:58 Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Sjá meira
Leyft að selja gamlar birgðir: „Þetta verður ekki flutt aftur til landsins“ Hagkaup fékk nýlega heimild hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja síðustu pakkana sína af Cocoa Puffs. Þeir höfðu safnað ryki í vöruhúsi eftir að tilkynnt var að ekki væri lengur heimilt að selja morgunkornið á Íslandi. Vörurnar voru fluttar til landsins síðasta sumar og hefðu að óbreyttu verið urðaðar. 11. janúar 2022 17:22
Harka færist í baráttuna um framtíð Cocoa Puffs á Íslandi Aðdáendur Cocoa Puffs vöknuðu upp við vondan draum í lok mars þegar umboðsaðili morgunkornsins tilkynnti að það yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Meira en hálfu ári síðar er enn hægt að fá súkkulaðikúlurnar í völdum verslunum en óvissa ríkir um framtíðina. Heilbrigðiseftirlitið hefur krafist þess að varan verði endanlega tekin úr sölu. 21. október 2021 08:00
ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl. 19. apríl 2021 15:44
Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. 31. mars 2021 13:58