Þriðja kynslóð af Formúla E bílum er fljótasti rafkappakstursbíll sögunnar Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 30. apríl 2022 07:01 Spark Gen3. Bíllinn heitir Spark Gen3 og verður fyrst notaður á níunda tímabili Formúla E. Kynning bílsins fór fram í Mónakó. Miklar breytingar hafa verið gerðar á yfirbyggingu bílsins og loftflæðishönnun.
Fyrstu keppnirnar þar sem þriðja kynslóðin verður notuð er undir lok árs á níunda tímabili Formúlu E. Bíllinn hefur verið sérstaklega hannaður til að keppa á götubrautum. Sjö lið eru samningsbundin til að taka þátt, DS, Jaguar, Mahindra, Maserati, Nio, Nissan og Porsche. Þá munu Andretti, Envision og Techeetah. Alþjóða akstursíþróttasambandið FIA segir að bíllinn sé það besta sem gerist í frammistöðu, skilvirkni og sjálfbærni.Myndband af YouTube rás FIA. Mótorinn í þriðju kynslóðinni er 470 hestöfl og með honum mun bíllinn geta náð yfir 320 km/klst. Bíllinn er einnig fyrsti formúlu kappakstursbíllinn sem er með aflrás bæði að framan og aftan. Bíllinn getur endurhlaðið inn á sig allt að 600kW við hemlun. Meira en tvöfalt meira en núverandi kynslóð. Þá er bíllinn einnig fær um að hlaða inn á sig 600kW á meðan á keppni stendur. Sjálfbærni hefur aukist við hönnun bílsins. Rafhlöður verða endurunnar og endurnýttar þegar þær eru ekki notaðar í keppni lengur. Lín og endurunnar koltrefjar eru orðin stór hluti af efninu sem fer í yfirbygginguna. Eitt af markmiðum hönnunar nýja bílsins er að minnka kolefnisspor bílsins um meira en 10%. Um 26% af dekkjunum mun vera gert úr náttúrulegu gúmmí og endurunnum trefjum. Spark Gen3. „Gen3 sýnir metnaðarfulla þriðju kynslóð Formúlu E og ABB FIA formúla E heimsmeistaramótsins,“ sagði stofnandi og stjórnarformaður mótaraðarinnar Alejandro Agag. „Með hverri kynslóð af kappakstursbíl höfum við farið að ystu mörkum þess sem er mögulegt í rafmagns tækni og ýtt lengra og lengra, þriðja kynslóðin er okkar metnaðarfyllsta verkefnið okkar hingað til,“ bætti Agag við. Spark Gen3 „Augu heimsins eru á Mónakó ePrix keppninni og við erum stolt af því að kynna bílinn sem við höfum verið tvö ár að þróa þennan bíl og að kynna hann í mótorsporti. Þakkir mínar eru til teymisins sem eru að stendur að baki bílnum, bæði hjá Formúla E og FIA. Framtíð rafkappaksturs er björt,“ bætti Agag við.
Formúla Vistvænir bílar Mest lesið Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Innlent Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent „Ein allra besta jólagjöfin“ Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent