Menning

Magnaðar ljós­myndir á gömlu al­mennings­salerni

Vésteinn Örn Pétursson og Snorri Másson skrifa
Iryna Kamieniewa er sýningarstjóri sýningarinnar.
Iryna Kamieniewa er sýningarstjóri sýningarinnar. Vísir/Egill

Í Núllinu í miðbæ Reykjavíkur var áður almenningssalerni, en nú er starfrækt þar listastúdíó. Þessi dægrin má þar finna ljósmyndasýningu sem hverfist um Úkraínu, sögu landsins og stríðið sem geisað hefur þar síðasta rúma mánuðinn.

Sýningin ber heitið Ukraine: Yestarday, Today, Tomorrow, eða Úkraína: Í dag, í gær, á morgun. Sýningarstjórinn, hin úkraínska Iryna Kamieniewa, ræddi sýninguna stuttlega við fréttastofu.

„Hér sýnum við verk fjögurra ungra úkraínskra ljósmyndara. Ég er frá Úkraínu líka, þess vegna ákvað ég að setja upp þessa sýningu. Til þess að hjálpa landinu mínu.“

Sýningunni er í raun skipt í þrjá hluta. Sá fyrsti sýnir „gærdag“ Úkraínu, eða tímann fyrir stríð. Myndir þess hluta sýna líf fólks á friðartímum og vinnu þeirra við landbúnað, en Úkraína er mikið landbúnaðarland.

Annar hluti sýningarinnar hefur síðan að geyma myndir af almennum borgurum að vígbúast, áður en innrás Rússa hófst, en mörgum var orðið ljóst fyrir innrásina að eitthvað væri í vændum, enda höfðu Rússar verið með mikla hernaðarviðveru við landamæri Úkraínu.

Síðasti hlutinn sýnir síðan aðstæður ungrar konu sem felur sig í loftvarnabyrgi, frá sprengju- og stórskotaliðsárásum Rússa, sem og aðstæður í úkraínskum bæjum og borgum í dag, sem margar hafa mátt sæta linnulausum árásum Rússahers með tilheyrandi eyðileggingu.

Sjón er sögu ríkari, en innlit fréttastofu á sýninguna má sjá í spilaranum hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.