Norðaustan átt og sums staðar rigning sunnantil Atli Ísleifsson skrifar 23. mars 2022 07:07 Hiti verður í kringum frostmark norðantil á landinu, en allt að 7 stiga hiti sunnanlands. Vísir/Vilhelm Reikna má með norðaustanátt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndi. Sums staðar verður rigning sunnanlands en él fyrir norðan.
Á vef Veðurstofunnar segir að eftir hádegi snúist vindurinn smám saman í suðaustanátt og bæti í rigningu sunnan- og vestanlands en styttir upp fyrir austan. Hiti verður í kringum frostmark norðantil á landinu, en allt að 7 stiga hiti sunnanlands. „Suðvestan 5-10 á morgun en 10-18 norðantil. Dregur úr úrkomu í fyrramálið. Hiti 1 til 7 stig. Snýst í norðlæga átt og kólnar seinnipartinn með éljum um landið norðanvert og rofar til sunnan heiða. Víða vægt frost seint annað kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðvestan 8-15 m/s og rigning eða slydda með köflum, en þurrt á Austurlandi. Hiti 1 til 7 stig. Norðlægari og kólnar seinnipartinn með snjókomu á norðanverðu landinu, en rofar til sunnanlands. Á föstudag: Snýst í austan og suðaustan 8-13, en 13-18 með suðurströndinni. Rigning eða slydda sunnan- og vestantil á landinu og snjókoma í uppsveitum, hiti 0 til 4 stig. Þurrt og bjart norðaustanlands með frosti að 7 stigum. Á laugardag: Sunnan og suðvestan 5-10 og rigning eða súld í flestum landshlutum en úrkomuminna norðan- og austanlands síðdegis. Hiti 2 til 7 stig. Á sunnudag: Breytileg átt og væta á sunnanverðu landinu með hita að 7 stigum, en dálítil slydda eða snjókoma norðantil og hiti um eða undir frostmarki. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg átt. Skýjað á landinu og lítilsháttar rigning eða snjókoma á víð og dreif. Vægt frost fyrir norðan, en frostlaust sunnanlands.
Veður Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Innlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira