Notaðar útivistarvörur í umboðssölu rjúka út hjá Fjallamarkaðnum Fjallakofinn 22. mars 2022 08:51 Fjallamarkaðurinn er staðsettur í Kringlunni 7 þar sem Fjallakofinn var áður til húsa. Í Fjallamarkaðnum, Kringlunni 7 er hægt að kaupa og selja notaðan útivistarfatnað og -búnað fyrir bæði börn og fullorðna. Fjallamarkaðurinn er í eigu Fjallakofans og hefur slegið í gegn. Áhugi á útvist er mikill og Íslendingar vilja út að hreyfa sig í öllum veðrum. „
Við opnuðum fyrir 5 mánuðum og viðtökurnar hafa verið rosalega góðar, sérstaklega núna eftir að byrjaði að snjóa hérna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið gríðarleg eftirspurn eftir bæði skíða- og snjóbretta búnaði sem og fatnaði. Okkur vantar eiginlega bara meiri vörur í búðina til að selja til að anna eftirspurn,“ segir Brynja Þorsteinsdóttir, verslunarstjóri Fjallamarkaðarins en markaðurinn tekur vörur í umboðssölu. Fólk getur þannig selt útivistarfatnað og búnað sem ekki er not fyrir lengur og gefið vörunni nýtt líf hjá nýjum eiganda. Einnig eru outlet- og útsöluvörur úr Fjallakofanum til sölu í markaðnum. Hugmyndin að umboðssölumarkaði kviknaði 2019 út frá samfélagslegri ábyrgð um endurnýtingu og til að búa til vettvang fyrir þá sem vilja selja og kaupa notaðan útvistafatnað og búnað. „Þetta einfaldar málin fyrir bæði seljendur og kaupendur að fá allar þessar vörur á einn stað þannig að ekki þurfi að fara í heimahús til að skoða og máta vörur. Þetta snýst einnig um að láta ekki ónotaðan útivistarfatnað og búnað safna ryki inni í geymslu í margar vikur eða mánuði. Komdu honum í verð og notaðu ágóðann upp í næsta ævintýri. Þannig getur þú hjálpað okkur í Fjallamarkaðnum að sýna samfélagslega ábyrgð í umhverfismálum, minnkað sóun og gefið öðrum tækifæri til að eignast búnað án þess að þurfa tæma veskið,“ segir Brynja. Hvernig virkar þetta? „Þeir sem vilja selja hjá okkur vörur þurfa að stofna aðgang inn í kerfið hjá okkur. Skráningargjaldið er 990 kr. sem er aðeins greitt einu sinni. Síðan setur seljandinn inn í kerfið þær vörur sem hann vill selja, verðleggur þær og tekur mynd. Verðið hefur verið frá 400 kr. og upp í allt að 200 þús. Fjallaskíðabúnaðurinn er það dýrasta sem við höfum verið með í vetur. Svo kemur fólk með vörurnar til okkar, við förum yfir þær og sjáum hvort þær uppfylli okkar kröfur og því næst birtum við þær á vefsíðunni okkar og setjum fram í verslunina. Þegar vara selst tekur Fjallamarkaðurinn þóknun af hverri sölu, 30% af vörum sem kosta 0-49.999kr og 20% af vörum sem kosta 50.000 og meira,“ útskýrir Brynja. „Allar vörurnar þurfa að vera í góðu ástandi, fatnaðurinn þarf að vera hreinn og óslitinn og búnaðurinn þarf að virka sem skyldi. Við tökum til dæmis ekki inn skíðabúnað sem er mikið eldri en 10-12 ára gamall að undanskildum barnabúnaði og við áskiljum okkur rétt til að taka vörur úr sölu ef það kemur í ljós eftir á að þær uppfylli ekki okkar skilyrði. Við tökum ekki notaðan öryggisbúnað eins og t.d. hjálma en ef varan er ný og enn í kassanum eða með miðann á sér þá skoðum við það frekar.“ Hægt er að stofna aðgang hér á heimasíðu Fjallamarkaðarins.
Ferðalög Skíðaíþróttir Mest lesið Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Fleiri fréttir Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Greiðsluáskorun Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Smáhýsin frá BYKO eru vinsæll valkostur fyrir hvaða tilefni sem er Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín Fjölbreyttar lausnir fyrir íslenskan markað Lánskjaravakt Aurbjargar auðveldar leit að hagstæðara húsnæðisláni Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Nútímaleg nálgun í netöryggi Íslensk framleiðsla og traust lausn fyrir byggingarmarkaðinn Með hollustu að leiðarljósi Sjá meira