KitchenAid sviptir hulunni af lit ársins 2022 Heimilistæki 16. mars 2022 12:41 Litur ársins 2022 er rauðrófurauður, en liturinn á að minna á litróf hversdagsins og minnir okkur á að njóta litlu hlutanna. Það er auðvelt að skauta yfir litlu hlutina sem færa okkur gleði í amstri dagsins. Rauðrófurauður, litur ársins 2022 hjá KitchenAid, minnir okkur á að brjóta upp á rútínuna og sjá það sem er hversdagslegt í nýju ljósi. Djúpi fjólublái liturinn endurspeglar litbrigði lífsins og hvernig við getum glaðst yfir fjölbreytileikanum. Þessi litur verður fáanlegur fyrir Artisan hrærivélarnar vinsælu og K400 blandarana frá KitchenAid. „Við hjá KitchenAid höfum alltaf lagt áherslu á að litur skiptir máli og veitir innblástur,“ segir Carley Smith, markaðsstjóri KitchenAid. „Rauðrófurauður er ekkert öðruvísi. Þetta er hressandi litur sem lífgar upp á umhverfið og því ættu allir metnaðarfullir kokkar að geta sótt innblástur í þennan fallega lit, sama á hvaða hæfileikastigi þeir eru.“ Allt frá því að fyrstu litirnir voru kynntir árið 1955, hefur KitchenAid lagt áherslu á að veita innblástur með litunum sínum. Litur ársins er tækifæri til að taka þessa vinnu enn lengra og nota litinn til að hafa áhrif á tískustrauma og menningarheima. „Ef þú horfir á rauðrófuna þá sérðu ekki utan á henni hversu fallegan lit hún býr yfir að innan,“ segir Jessica McConnell, sem sér um lita-, frágangs- og efnishönnun hjá Whirlpool. „Þegar það er svo skorið í rófuna þá kemur í ljós einstaklega djúpur og fallegur purpurarauður litur með satín áferð sem gera máltíðina enn skemmtilegri og litríkari.“ KitchenAid vonar að með Artisan hrærivél og K400 blandara í lit ársins kveiki það löngun ástríðukokka til að prufa sig áfram í eldhúsinu og í lífinu. Hrærivélin býður upp á endalausa möguleika til að einfalda handbrögðin í eldhúsinu, á meðan K400 blandarinn býr yfir þeim krafti sem þarf til að blanda jafnvel hörðustu hráefnin í silkimjúkan þeyting. Artisan hrærivélin og K400 blandarinn verða aðeins tímabundið fáanleg í þessum fallega lit ársins og koma í takmörkuðu magni til landsins. Hvoru tveggja verður fáanlegt í Raflandi, innflutningsaðila KitchenAid á Íslandi, á vormánuðum 2022. Um KitchenAid Allt frá því að fyrsta hrærivélin kom á markað árið 1919 og fyrsta uppþvottavélin árið 1949, hefur KitchenAid byggt upp ríka arfleifð heimilistækja sem eru hönnuð fyrir fólk sem hefur ástríðu fyrir eldamennsku. Í dag er hægt að fá nánast öll helstu tæki fyrir nútímaeldhús, allt frá hrærivélinni góðu til kæliskápa. Til að fá fréttir af öllu því helsta frá KitchenAid á Íslandi er hægt að fylgja þeim á Facebook og á Instagram. Matur Mest lesið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Fleiri fréttir Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira
Það er auðvelt að skauta yfir litlu hlutina sem færa okkur gleði í amstri dagsins. Rauðrófurauður, litur ársins 2022 hjá KitchenAid, minnir okkur á að brjóta upp á rútínuna og sjá það sem er hversdagslegt í nýju ljósi. Djúpi fjólublái liturinn endurspeglar litbrigði lífsins og hvernig við getum glaðst yfir fjölbreytileikanum. Þessi litur verður fáanlegur fyrir Artisan hrærivélarnar vinsælu og K400 blandarana frá KitchenAid. „Við hjá KitchenAid höfum alltaf lagt áherslu á að litur skiptir máli og veitir innblástur,“ segir Carley Smith, markaðsstjóri KitchenAid. „Rauðrófurauður er ekkert öðruvísi. Þetta er hressandi litur sem lífgar upp á umhverfið og því ættu allir metnaðarfullir kokkar að geta sótt innblástur í þennan fallega lit, sama á hvaða hæfileikastigi þeir eru.“ Allt frá því að fyrstu litirnir voru kynntir árið 1955, hefur KitchenAid lagt áherslu á að veita innblástur með litunum sínum. Litur ársins er tækifæri til að taka þessa vinnu enn lengra og nota litinn til að hafa áhrif á tískustrauma og menningarheima. „Ef þú horfir á rauðrófuna þá sérðu ekki utan á henni hversu fallegan lit hún býr yfir að innan,“ segir Jessica McConnell, sem sér um lita-, frágangs- og efnishönnun hjá Whirlpool. „Þegar það er svo skorið í rófuna þá kemur í ljós einstaklega djúpur og fallegur purpurarauður litur með satín áferð sem gera máltíðina enn skemmtilegri og litríkari.“ KitchenAid vonar að með Artisan hrærivél og K400 blandara í lit ársins kveiki það löngun ástríðukokka til að prufa sig áfram í eldhúsinu og í lífinu. Hrærivélin býður upp á endalausa möguleika til að einfalda handbrögðin í eldhúsinu, á meðan K400 blandarinn býr yfir þeim krafti sem þarf til að blanda jafnvel hörðustu hráefnin í silkimjúkan þeyting. Artisan hrærivélin og K400 blandarinn verða aðeins tímabundið fáanleg í þessum fallega lit ársins og koma í takmörkuðu magni til landsins. Hvoru tveggja verður fáanlegt í Raflandi, innflutningsaðila KitchenAid á Íslandi, á vormánuðum 2022. Um KitchenAid Allt frá því að fyrsta hrærivélin kom á markað árið 1919 og fyrsta uppþvottavélin árið 1949, hefur KitchenAid byggt upp ríka arfleifð heimilistækja sem eru hönnuð fyrir fólk sem hefur ástríðu fyrir eldamennsku. Í dag er hægt að fá nánast öll helstu tæki fyrir nútímaeldhús, allt frá hrærivélinni góðu til kæliskápa. Til að fá fréttir af öllu því helsta frá KitchenAid á Íslandi er hægt að fylgja þeim á Facebook og á Instagram.
Allt frá því að fyrsta hrærivélin kom á markað árið 1919 og fyrsta uppþvottavélin árið 1949, hefur KitchenAid byggt upp ríka arfleifð heimilistækja sem eru hönnuð fyrir fólk sem hefur ástríðu fyrir eldamennsku. Í dag er hægt að fá nánast öll helstu tæki fyrir nútímaeldhús, allt frá hrærivélinni góðu til kæliskápa. Til að fá fréttir af öllu því helsta frá KitchenAid á Íslandi er hægt að fylgja þeim á Facebook og á Instagram.
Matur Mest lesið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Fleiri fréttir Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira