Lífið

Gerðu upp fallega íbúð í Kópavoginum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Breytingarnar tóku eins og eina meðgöngu.
Breytingarnar tóku eins og eina meðgöngu.

Í lokaþættinum í bili af Heimsókn með Sindrasyni var kíkt í heimsókn til Tinnu Vibeka og Benjamín Bjarnasyni sem tóku fallega íbúð í Kópavogi í gegn á síðasta ári.

Parið tók allt í gegn og rifu í raun allt út úr eigninni. Þegar Sindri hitti Tinnu fyrir breytingarnar var ekki á stefnuskránni að eignast barn en eftir breytingar var hún orðin kasólétt.

Hér að neðan má sjá hvernig eignin leit úr fyrir breytingar og örlítið hvernig til tókst. Benjamín er sjálfur múrari og vann hann baki brotnu allt ferlið.

Klippa: Gerðu upp fallega íbúð í Kópavoginum





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.