Vindur róast en reikna má með slyddu eða snjókomu Atli Ísleifsson skrifar 15. febrúar 2022 07:17 Reikna má með kólnandi veðri. Vísir/Vilhelm Nú er vindur að róast á Suður- og Vesturlandi, þar má þó búast við slyddu eða snjókomu fram eftir morgni. Eftir hádegi er útlit fyrir stöku él á þessum slóðum.
Á vef Veðurstofunnar segir að norðan- og austanlands sé enn allhvöss eða hvöss suðaustanátt og jafnvel stormur til fjalla. Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi til klukkan 17 í dag. „Dálítil snjókoma eða slydda á Norður- og Austurlandi, en meiri ofankoma á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hitinn á landinu í dag verður kringum frostmarkið. Á morgun lægir síðan meira og verður fremur hægur vindur víðast hvar. Snjókomu og éljabakkar eru á sveimi allt í kringum landið og munu fáir eða engir landshlutar sleppa við ofankomu áður en morgundagurinn er úti. Hitinn þokast niðurávið og útlit er fyrir frost 0 til 5 stig á morgun,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan 5-13 m/s, skýjað og dálítil snjókoma eða él á austurhelmingi landsins. Frost 0 til 5 stig. Vestlægari og líkur á snjókomu á suðvesturhorninu um kvöldið. Á fimmtudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 og stöku él, einkum við sjávarsíðuna. Frost 1 til 8 stig. Á föstudag: Fremur hæg norðaustan- og austanátt. Víða bjartviðri, en lítilsháttar él norðaustan- og austanlands. Frost 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á laugardag: Vaxandi austlæg átt. Snjókoma af og til á sunnanverðu landinu og minnkandi frost. Hægari vindur norðantil, þurrt að kalla og frost að 10 stigum. Á sunnudag: Austan og norðaustan hvassviðri eða stormur. Snjókoma með köflum, en slydda með suðurströndinni. Frost 0 til 4 stig, en frostlaust syðst. Á mánudag: Austlæg átt, stöku él og frost 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Fleiri fréttir Áfram kalt og bætir í vind á morgun Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Áfram köld og norðlæg átt Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Allt að tuttugu stiga hiti Næsta lægð væntanleg á morgun Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Bætir smám saman í vind Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Rigning eða súld um mest allt land Búist við austlægri átt Fimmtán stiga frost á Grímsstöðum á Fjöllum í nótt Élja- og snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri Vestan- og suðvestanátt með skúrum eða éljum Lægð nálgast úr suðvestri Sjá meira